Upp í vindinn - 01.05.2018, Qupperneq 8
Umhveríis- og byggingarverk-
fræðideild: Yfirnt arsins 2017
Dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor og deildarforsetí
Guðmundur hóf störf hjá Háskóla íslands sem prófessor árið
2007 við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild. Hann gegndi
stöðu varadeildarforseta árin 2008-2014, var formaður Verkfræði-
stofnunar Háskóla íslands 2012-2015, og varð deildarforseti árið
2014. Á árinu 2017 varð dr. Harpa Stefánsdóttir, gestalektor við
deildina. Dr. Harpa er með doktorspróf í borgarskipulagi frá
Norwegian University of Life Sciences (NMBU) árið 2014 og starfar
nú þar. Deildin býður Hörpu velkomna til samstarfs. Þann 1. júlí 2017
tók dr. Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor, við starfi sem
forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla íslands. Deildin
óskar Sigurði Magnúsi til hamingju með hið nýja starf og hlakkar
til samstarfs við hann á nýjum vettvangi. Dr. Rajesh Rupakhety,
prófessor við deildina, tók 1. júlí 2017 við sem varadeildarforseti
og námsbrautarstjóri í byggingarverkfræði. Deildin óskar Rajesh
innilega til hamingju með kjörið. Þá var dr. Hrund Ólöf Andradóttir
kjörin námsbrautarstjóri í umhverfisverkfræði og tók hún við
starfinu 1. júlí 2017. Deildin óskar Hrund innilega til hamingju
með kjörið. Á árinu 2017 fór einn starfsmaður deildarinnar á
eftirlaun sökum aldurs, dr. María J. Gunnarsdóttir, sérfræðingur.
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild þakkar Maríu fyrir vel unnin
störf við deildina.
DoktorsnaiTi
Frá vinstrí Jukka Heinonen, Sanna Elina
Ala-Mantíla og Sigurður Magnús Garðarsson,
þáverandi varadeildarforseti, sem stýrði
athöfninni.
Á árinu 2017 brautskráðist einn með doktorspróf frá deildinni.
Þann 26. maí kynnti Sanna Elina Ala-Mantila doktorsverkefni sitt
í umhverfisfræði. Verkefnið bar heitið: „Sjálfbær byggð? Staðbundið
misræmi á losun gróðurhúsalofttegunda og huglægrar vellíðunar
(Urban sustainability? The spatial disparities of greenhouse gas
emissions and subjective wellbeing)." Sanna hlaut sameiginlega
doktorsgráðu frá Háskóla íslands og Aalto-háskóla í Finnlandi
og fór vörnin fram í Helsinki. Andmælandi var dr. Sylvia Lorek,
SERI Deutschland e.V., Þýskalandi. Leiðbeinandi var dr. Jukka
Heinonen, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
Háskóla íslands. Einnig sátu í doktorsnefnd dr. Seppo Junnila,
prófessor við Aalto-háskóla og dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson,
prófessor og deildarforseti. Nú stunda 18 doktorsnemendur
nám við deildina. Doktorsnám við deildina hefur vaxið undanfarin
ár. Doktorsverkefnin eru Ijölbreytt og eru mikilvægur liður í
...upp ivindinn
8