Upp í vindinn - 01.05.2018, Side 9
rannsóknum og rannsóknasamstarfi deildarinnar. Doktorsverkefnin
eru iðulega unnin í samstarfi við aðila frá erlendum stofnunum
og háskólum.
Á árinu 2017 brautskráðust 13 (9 konur og 4 karlar) með BS próf í
umhverfis- og byggingarverkfræði. Nokkur hluti heldur áfram og
lýkur MS gráðu í verkfræði við deildina og öðlast þar með rétt til að
fá starfsheitið verkfræðingur. Námið er f]ölbreytt og tekur á helstu
sameiginlegu fagsviðum umhverfis- og byggingarverkfræði. BS
námið býður upp á fyrstu skref í átt til sérhæfingar en það er í
meistaranáminu sem nemendur sérhæfa sig á tilteknu sviði um-
hverfisverkfræði eða byggingarverkfræði. BS nemendur takast á
við fræðileg og verkleg verkefni í náminu. BS nemendur standa að
öflugu nemendafélagi sem heitir Naglarnir. Skólaárið 2017-2018 er
Brynja Benediktsdóttir formaður félagsins. Deildin hefur ávallt átt
gott samstarf við Naglana en fræðast má um starfsemi félagsins á
heimasíðu þess, naglar.hi.is.
Á árinu vörðu 15 MS nemendur ritgerðir sínar við deildina
og brautskráðust með MS próf. Meistaranám við Umhverfis-
og byggingarverkfræðideild er öflugt, alþjóðlegt nám og fjöldi
nemenda í MS námi er um 50. Samstarf er við fjölmörg fyrirtæki
og stofnanir um verkefni og koma margir starfsmenn þaðan
að meistaraverkefnum sem leiðbeinendur eða prófdómarar.
Þannig viðheldur deildin meðal annars nánum tengslum sínum við
atvinnulífið og brautskráðir verkfræðingar frá deildinni hafa verið
eftirsóttir í störf að námi loknu. Meistaranemendurnir og nöfn
ritgerða þeirra á íslensku eru:
Alasdair Paul Brewer, Hreyfðarfræðileg greining á háspennulínu-
mastri vegna vindálags, samstarfsstofnun: EFLA Verkfræðistofa;
Alma Pálsdóttir, Samanburður á æviskeiðum verkefna, samstarfs-
stofnun: VSÓ Ráðgjöf; Ásmundur Þrastarson, Tjónnæmi sker-
veggjabygginga úr járnbentri steinsteypu, samstarfsstofnun: EFLA
Verkfræðistofa; Birgir Pétursson, Standard FA sement á íslandi,
samstarfsstofnun: BM Vallá; Bragi Magnússon, Líkanagerð og
kerfisauðkenning á jarðskjálftaeinangraðri stálbogabrú; Hector
Mauricio Angarita Moreno, Hjólfaramyndun í vegum - samanburður
við hröðuð álagspróf, samstarfsstofnun: EFLA Verkfræðistofa;
Ólafur Már Lárusson, Aðferðafræði kostnaðarmats Statsbygg í
Noregi - greining og mat; Sigríður Lilja Skúladóttir, Samgöngur
erlendraferðamanna á íslandi - Viðhorfskönnun á akstursskilyrðum,
samstarfsstofnun: Verkfræðistofa Haralds Sigþórssonar; Sólrún