Upp í vindinn - 01.05.2018, Side 11
Þorsteinn Sæmundsson, aðjúnkt, og Bjarni Bessason, prófessor, með öflugum hópi umhverfís-
og byggingarverkfræðinema við Drumbabót íFljótsh/íð.
af rannsóknarvinnunni og fer sú virkni vaxandi. Sem dæmi um
alþjóðleg rannsóknarverkefni má nefna að deildin tekur þátt í
Norræna öndvegissetrinu NORDRESS (nordress.hi.is, Nordic
Centre of Excellence on Resilience and Societal Security) styrkt af
NordForsk; GEORG rannsóknaklasanum, sem leiddur er af Sigurði
Magnúsi Garðarssyni, prófessor; og margvíslegum Evrópu-
verkefnum. M.a. verkefna sem deildarfólk hefur unnið að undanfarið
eru: KNOWRISK (Know your city, Reduce selSmic risK through
non-structural elements); AQUAVALENS (Protecting the health
of Europeans by improving methods for the detection of pathogens
in drinking water and water used in food preparation, aquavalens.
org); og Aquaponics (The EU Aquaponics Hub: Realising
Sustainable Integrated Fish and Vegetable Production for the EU,
aquaponics.is).
Niðurstöður rannsóknanna eru birtar í alþjóðlegum vísindatímaritum
og á innlendum vettvangi og má finna lista af greinum á vefsíðum
einstakra starfsmanna deildarinnar von.hi.is/ub.
Rannsóknasjóður Rannís styrkti nýtt rannsóknaverkefni við deildina
sem miðar að því að meta snjóbráð og virkni ofanvatnslausna í
borgarumhverfinu. Hverfið Urriðaholt í Garðabæ, sem er fyrsta
umhverfisvottaða hverfið á íslandi og innleiðir blágrænar
ofanvatnslausnir til verndar Urriðavatns, verður rannsakað næstu
tvo vetur. Snjór bráðnar mishratt eftir þjöppun, mengun og
Yfirlit arsins 2017
11