Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 15
Þattakenclur
i könnun
Þýði könnunar voru einstaklingar 18 ára og eldri sem búa eða hafa
búið á íslandi og þekkja til Strætó bs. Könnunin var bæði á ensku og
íslensku þannig að þeir sem tóku þátt í könnuninni urðu að kunna
íslensku eða ensku til að geta svarað. Könnunin var auglýst og henni
deilt á Facebook og á netinu, ásamt því að sendur var fjöldapóstur á
alla grunnnema hjá Háskóla íslands. Könnunin var auglýst á netinu í
31 dag, frá 22. febrúar til 25 mars, 2017, og er hugsanlegt að þeir
sem nota almenningssamgöngur meira hafi verið líklegri til að svara.
Því er ekki hægt að heimfæra niðurstöðurnar beint yfir á almenning
en niðurstöðurnar gefa samt sem áður áhugaverða sýn á stöðu
mála. Hlutfall karla og kvenna var fremur ójafnt, en 31% svarenda
voru karlkyns, um 68% kvenkyns og 1% annað. Meirihluti svarenda
var jafnframt frá íslandi, eða um 94%, og um 6% frá öðrum löndum.
Líkön voru búin til í tölfræðiforritinu STATA. Gert var raðtölu probit-
Ll kanagerð líkan til að meta hvaða breytur höfðu tölfræðilega marktæk áhrif á
strætónotkun að jafnaði. Búin voru til binary-logit líkön fyrir þær
endurbætur sem þátttakendur vildu helst að yrðu gerðar hjá Strætó
til að þeir myndu halda áfram að nota Strætó eða byrja að nota
Strætó aftur. Það var gert til að meta hvaða breytur höfðu tölfræði-
lega marktæk áhrif á að umræddur valkostur var valinn. Auk þess
var búið til fjölkosta logit-líkan til að meta hvaða breytur höfðu töl-
fræðilega marktæk áhrif á ferðamáta sem valinn var í síðustu ferð.
StraBtoliotkun
að jafnaði
Mynd 7 Strætónotkun þátttakenda aðjafnaði
Þátttakendur voru spurðir um strætónotkun að jafnaði (sjá mynd 1).
Flestir svöruðu að þeir notuðu Strætó 3-12 sinnum á ári að jafnaði,
rúm 19%. Tæp 34% svarenda notuðu Strætó tvisvar í viku eða oftar,
um 10% svöruðu að þau notuðu Strætó daglega, á meðan rúm 18%
sögðust ekki nota Strætó. Tafla 1 sýnir samantekt yfir þær breytur
sem höfðu marktæk áhrif á hversu oft
svarendur notuðu Strætó að jafnaði. Fjarlægð
frá heimili að þeim stað sem ferðast þarf oftast
til hefur töluverð áhrif. Þeir sem eru 31-35
mínútur að taka Strætó frá heimili til vinnu/
skóla/annað, og þeir sem eru 31 mínútur eða
lengur að keyra til vinnu/skóla/annað eru
líklegri til að nota Strætó meira. Þeir sem búa
þar sem aðgengi að almenningssamgöngum
er betra eru líklegri til að nota Strætó meira.
Það sést því þeir sem þurfa einungis að ganga í
5 mínútur eða minna að næstu stoppistöð við heimili og þeir sem
búa þar sem fimm eða fleiri strætóleiðir stoppa í göngufæri við
Daglega
4-5 daga í viku
2-3 daga í viku
2- 4 daga í mánuði
3- 12 daga á ári
1-2 daga á ári
Ég nota ekki strætó
Almenningssamgöngur a Islandi
1lD