Upp í vindinn - 01.05.2018, Qupperneq 24
Vetrarsteypa
rl'QStþol
Jaoob Thrysoe, Tæknilegur ráðgjafi, M.So.
Aalborg Portland A/S, Industri
Þegar steypt er að vetrarlagi þarf að íhuga vel við hvaða aðstæður
steypan mun harðna. Því lægra sem hitastigið er, því hægari eru
efnahvörf á milli sements og vatns, og eiginleikar steypunnar þróast
að sama skapi hægar. Við 5°C tekur það t.a.m. 3,5 sinnum lengri
tíma að ná tilteknum styrkleika en við 20°C, og 3,5 sinnum lengri
tfmi líður þar til steypan þolir frost. Að sama skapi líður því 3,5
sinnum lengri tími þar til hægt er að slá frá steypunni, og ef hún frýs
áður en hún hefur náð frostþoli eyðileggst hún, óháð gæðum hennar.
Því er mikilvægt að hafa í huga hvenær steypan sem lögð er niður
verður frostþolin, hvernig styrkurinn þróast og til hvaða aðgerða
þarf að grípa til þess að flýta fyrir þeirri þróun. Ein leið til þess er
hitastigslíking, sem er góð aðferð til að skipuleggja vinnuna svo
hörðnunin gangi sem best og til að sjá fyrir hugsanleg vandamál,
áður en þau koma upp.
Til að forðast frostskemmdir þarf nægilega mikill hluti af vatninu að
vera bundinn þegar vötnun sementsins á sér stað til þess að
loftpórur í sementsefjunni geti tekið við því vatni sem eftir er þegar
það þenst út við frost, [1]. Loftpórurnar verða til vegna efnafræði-
legrar rýrnunar í hörðnunarferlinu. Af því leiðir, sbr. [1], að hægt er að
setja frostþol steypunnar fram í samhengi við hörðnunarstig
sementsins (HS.) - þann hluta sementsins sem á að hafa hvarfast:
HS. > 0,86 * v/s-hlutfall
Steypa með v/s-hlutfallið 0,55 myndi til dæmis vera frostþolin
við hörðnunarstig upp á 0,47, þ.e. þegar 47% sementsins hafa
hvarfast. Tíminn sem það tekur að ná hörðnunarstigi fer að
sjálfsögðu eftir hörðnunarhitastiginu. Tafla 1 sýnir samhengið á milli
v/s-hlutfalls og nauðsynlegs hörðnunarstigs og þess tíma sem það
tekur að ná frostþoli við annars vegar 5°C og hins vegar 20°C fyrir
RAPID-sement.
• Vatns/sements — hlutfa.ll 0,40 0,50 0,60 0,70 0,80
• Nauðsynlegt hörðnunarstig 0,34 0,43 0,50 0,60 0,69
• Nauðsynlegt hörðnunartími 0,5 0,7 1,1 1,7 2,5
í sólarhringum v. 20°C
• Nauðsynlegt hörðnunartími 1,7 2,4 3,7 5,9 8,7
í sólarhringum v. 5°C
Tafla 1
...uppi vindinn