Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 26
Klóríðlaus, hersluflýtandi efni hafa í raun aðeins lítil áhrif á styrk-
aukninguna. Þau eru einkum notuð til að auðvelda storknun með
það í huga að flýta fyrir sléttun.
Þegar notuð er heit steypa að vetrarlagi er ávallt mikilvægt að hylja
það sem verið er að steypa með viðeigandi einangrunarefni:
• Ef verið er að steypa þunna byggingarhluti er hætta
á því að hitastig steypunnar lækki
áður en sementið nær að byrja að harðna og þar með
verður ávinningurinn af því að nota heita steypu enginn.
• Ef um massasteypu er að ræða dregur viðeigandi
einangrun úr hættunni á sprungum.
Hægt er að líkja nokkuð nákvæmlega eftirferli hitastigs í byggingu
• Samsetningu steypunnar (v/s, magni oggerð sements,
svifösku og kísilryki)
• Hitastig við niðurlögn
• Stærðum, þversniði
• Mótefnum
• Tímasetningu fráslattur
Hitastigi og vindi að því gefnu að hægt sé að stjórna eftirfarandi
upphafsbreytum:
• Hvenær má slá frá steypunni, eða spenna víranna?
• Eru kröfur um útþornun uppfylltar?
• Hvenær þolir steypan frost?
• Á að nota upphitaða steypu?
• Er hætta á sprungum vegna hitaspennu?
• Myndi það hjálpa að einangra mótin eða hylja þau
með einangrunarmottum - eða myndiþað skapa
önnur vandamál?
Með hitastigslíkingu er með miklu öryggi hægt að leggja mat á mörg
vandamál sem tengjast steypu að vetrarlagi. Hvað hörðnunarferlið
varðar er erfitt að byggja upp nothæfa reynslu, einkum vegna þess
að það eru svo margar breytur að erfitt væri að taka tillit þeirra allra.
Það á ekki síst við þegar um massasteypu með stórum þversniðum
er að ræða. Það er t.a.m. ekki óalgengt að menn kjósi að nota
einangrunarmottur að vetrarlagi og hitastigið verði hærra en til stóð
með tilheyrandi hættu á sprungum þegar slegið er frá. í slíkum
...upp í'vindinn