Upp í vindinn - 01.05.2018, Síða 28
Hrund Ólöf Andradóttir og Bergljót Hjartardóttir
Prófessor, og MS nemandi,
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóla íslands
Inngangur Nýlegar greiningar á loftgæðamælingum í Reykjavík gefa til kynna
tíð hágildi af svifryki. Það vekur athygli að umferðarmælistöðin við
gatnamót Grensás og Miklubrautar uppfyllir ekki bandarískar
reglugerðir m.t.t. fíns svifryks (minna in 2.5 mm, PM2 5), meðan borgir
með milljón(ir) íbúa standast reglugerðirnar (Anderson, 2017). Til
þess að leysa svifryksvandann í Reykjavík, þarf að skilja betur
uppsprettur ryksins.
Sá hluti svifryks sem veldur mestum áhyggjum heilsu manna er sót
(enska: black carbon, skammstafað BC), sem getur bæði ferðast
djúpt í lungun og er jafnframt eitur sem veldur krabbameini ogfleiri
neikvæðum heilsueinkennum (Alþjóðlega heilbrigðismálastofnunin
[WHO], 2012). Sót myndast við bruna á eldsneyti og magn þess í
umhverfinu er háð umferðarmagni og samsetningu bílaflotans.
Rannsóknir á efnasamsetningu svifryks gefa til kynna að sót sé
vaxandi í Reykjavík síðastliðin ár, samfara aukinni umferð. Hlutdeild
sóts jókst úr 7% (Skúladóttir o.fl. 2003) yfir í 30% (Páll Höskuldsson
2013; Páll Höskuldsson og Arngrímur Thorlacius 2017). Sót er ekki
tiltekið í heilsuverndarreglugerðum og er því ekki mælt í reglubundnu
loftgæðaeftirliti.
Markmið þessarar forrannsóknar var að meta stærðargráðu sóts í
Reykjavík. Rannsóknin var framkvæmd af þverfræðilegum hópi
nemenda sem hluti af námskeiðinu Umhverfisverkfræði við
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla íslands. Þessi
grein tekur stuttlega saman niðurstöður rannsóknarinnar, en
heildartexta má nálgast á vefsíðunni https://uni.hi.is/hrund/air-
quality/ (sjá Hrund Andradóttur og Bergljót Hjartardóttur, 2018).
Aðfsrðir Níu fjögurra manna nemendahópar mældu sót (og svifryk) í 0,5-1
klst. á mismunandi gönguleiðum utandyra miðsvæðis í Reykjavík
dagana 16.-18. október 2017, undir leiðsögn Bergljótar Hjartardóttur,
MS nema í umhverfisverkfræði. Lofthiti og vindur fór vaxandi frá
6°C og <1,5 m/s yfir í 10°C og >6 m/s. Mælt var í bílakjöllurum í roki
og rigningu. Sót og GPS staðsetning var mælt á 10 sekúnda millibili
með Microaeth MA350 mæli frá Aethlabs. Mæli var komið fyrir í
...upp í'víndinn
28