Upp í vindinn - 01.05.2018, Qupperneq 48
Mynd 5 Mældur lofthiti i8 íbúðum tímabilið 20/10 -19/121994 Mynd 6 Mældur loftraki í8 íbúðum tímabiiið 20/10 -19/121994
Tímabilið 20. október til 19. desember 1994 voru á vegum
Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins (Óli Hilmar Jónsson,
1996, Björn Marteinsson, 1999) settir síritandi mælar fyrir hita og
loftraka í 8 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur mælinganna var
að fá einhverja hugmynd um algengan hita og loftraka í
íbúðarhúsnæði, en áður höfðu verið gerðar stakar mælingar í fjölda
húsa (Óli Hilmar Jónsson, 1996). Niðurstöður mælinga eru á
myndum 5 og 6. Lofthiti mældist iðulega á bilinu 21-24 °C, sem ekki
var óvænt þar sem þekkt var að lofthiti á þessu ódýra hitunarsvæði
væri iðulega talsvert hærri heldur en algeng viðmið erlendis (20 °C).
Hlutfallsraki innilofts mældist í sjö íbúðanna almennt á bilinu 25-45
%HR, sem samsvarar rakabætingu um 2 g/m3. í einni íbúðanna
mældist loftraki mun hærri, eða iðulega á bilinu 60-75 %HR. Útfrá
þessum mæligildum, og viðræðum við fagfólk, var talið að almennt
mætti miða við að loftraki í íbúðarhúsum hérlendis væri 25-40 %HR
að vetrarlagi. Til viðmiðunar má nefna að ef rakinn fer yfir 45 %
þegar kalt er úti þá verður rakaþétting innan á tvöföldu
einangrunargleri. Að sumarlagi, þegar lofthiti er hærri heldur en að
vetrarlagi, þá fer loftrakinn talsvert hærra að skaðlausu, eða upp í
50-60 %HR.
Það stóð alltaf til að gera meiri mælingar, bæði í fleiri íbúðum og á
öðrum árstímum, en af því varð ekki. Þegar þessi mál eru nú rædd
meðal fagfólks þá er jafnvel talið að loftraki innandyra hafi hækkað
frá því sem var, einkum vegna minni loftræsingar húsa. Þekking á
hita- og rakaálagi innandyra í byggingum almennt er nauðsynleg
...uppívindinn
48