Upp í vindinn - 01.05.2018, Síða 50
sé að innanverðu málaður með nokkuð rakaþéttri málningu, a.m.k í
samanburði við málninguna sem er gert ráð fyrir á utanverðum
veggnum. Þessi veggtegund er algengasta útveggjargerð í þegar
byggðum íbúðarhúsum á íslandi. Útreikningar í samræmi við aðferð
Glaser, með innilofthita 20°C en mismunandi forsendum varðandi
útihita, útiloftraka og inniloftraka. Útihiti er valinn með nokkur
mismunandi gildi, sem má vænta að geti orðið árlega í nokkrar vikur
hvert, sjá mynd 2 en útiloftraki alltaf 80%HR sem er nálægt
mánaðarmeðaltali allra mánaða ársins. Gildi á hlutfallsraka lofts er
valið þannig að rakaþétting eigi sér stað í veggnum.
Niðurstöður útreikninganna sýna t.d. að þegar útihiti er -2 °C þá
verður rakaþétting innan á steypu veggjarins þegar inniloftraki nær
32 %HR, veggurinn þolir illa háan loftraka og í miklum kuldum þá
má gera ráð fyrir að einhver rakaþétting sé í nánast öllum veggjum
af þessari gerð; til að koma í veg fyrir slíkt þyrfti annaðhvort loftraki
inni að vera svo lágur að það er óraunhæft eða málning að innan að
vera mun rakaþéttari heldur en gengur og gerist. Jafnvel í 5 °C
útihita þá má inniraki ekki fara yfir 50%HR án þess að rakaþétting
verði í veggnum. Fyrir þessa tegund byggingarhluta verður því að
gæta þess að halda inniloftraka hóflega lágum til að koma í veg fyrir
rakavandamál.
Það hafa alltaf verið einhver raka- og lekavandamál til staðar í
byggingum hérlendis sem erlendis, en sem betur fer er það þó ekki
reglan.
Byggingartími hefur iðulega dregist á langinn vegna skorts á
fjármagni, og byggingar því náð að þorna á byggingartímanum án
þess að hugsað væri sérstaklega fyrir slíku. Stuttur byggingartími
krefst meiri aðgæslu, nú verður að tryggja að byggingarraki sé
hóflega lágur þegar byggingarhlutum er lokað; t.d. þarf timburraki í
timburþaki að vera undir 18-20% áður en þakið er einangrað og
gengið verður frá rakavarnarlagi.
Hérlendis, a.m.k. á ódýrari hitunarsvæðum, hefur tíðkast að
loftræsta vel og loftraki í innilofti þá almennt lægri heldur en tíðkast
erlendis. Gerð algengra byggingarhluta, t.d. steyptur veggur
einangraður að innan og múraður eða timburþak ef frágangur
rakavarnarlags tryggir ekki loftþéttleika, er þannig að þeir þola illa
mikið rakaálag. Lágur loftraki inni hefur því örugglega komið í veg
fyrir að rakavandamál yrðu miklu tíðari heldur en þau þó eru.
...upp ívindinn