Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 55
þróun hefur verið í utanhússklæðningum á undanförnum árum,
hvort sem litið er til brunavottunar á efninu sjálfu eða brunatæknilegs
frágangs. Þá eru til aðferðir til að meta sérstaklega áhrif
brennanlegra klæðninga á brunaöryggi. Við val á utanhúss-
klæðningum bygginga þarf taka mið af aðstæðum hverju sinni, með
tilliti til heildaráhættu.
Kröfur og viðmið íslenska byggingarreglugerðin gerir þær kröfur skv. meginreglum
bYggingsirreglugorðar að yfirborðsfletir útveggja valdi ekki sérstakri hættu á útbreiðslu
elds milli brunahólfa innan viðkomandi byggingar né útbreiðslu elds
milli bygginga. Einnig eru gerðar kröfur um að heildaruppbygging
útveggja rýri ekki brunahólfun bygginga og að útbreiðsla elds inni í
holrými veggja sé hindruð. [1] Því eru ekki eingöngu gerðar kröfur til
yfirborðseiginleika ystu klæðningar, heldur allra efna í útveggjum
sem og uppbyggingar og frágangs.
Viðmiðunarreglur segja að klæðningar á einnar hæðar húsum megi
vera í flokki 2, en á hærri byggingum skuli þær vera í flokki 1.
Klæðningar í flokki 2 eru t.d. flestar timburklæðningar, en klæðningar
í flokki 1 eru t.d. málmklæðningar, sementsbundnar plötur, múrhúð
eða sérstaklega eldvarið timbur. Að auki leyfa viðmiðunarreglur að
afmarkaðir smáfletir utan á byggingum megi vera í flokki 2.
Meginreglur skv. ofangreindu eru ófrávíkjanlegar, en víkja má frá
viðmiðunarreglum ef sýnt er fram á að hönnuð lausn uppfylli megin-
markmið reglugerðarinnar og meginreglur viðkomandi ákvæða.
Þannig er hægt að hanna byggingar með brennanlegum
klæðningum og beita í staðinn brunatæknilegum lausnum til að
uppfylla meginreglur um að uppbygging útveggja og utanhúss-
klæðningar valdi ekki útbreiðslu elds milli brunahólfa eða bygginga.
Alltaf þarf að sýna fram á, með viðeigandi rökstuðningi eða
útreikningum, að brunahönnuð lausn veiti ásættanlegt öryggi.
Profanil' og voffanir Brunavottanir klæðninga skv. byggingarreglugerð byggja á flokkun
skv. ÍST EN 13501-1. [2] Sem dæmi þá uppfyllir klæðning í flokki 1
skv. byggingarreglugerð vottunina K210 B-s1,d0 og klæðning í flokki
2 uppfyllir D-s2,d0. K210 vottunin segir til um að klæðningin verji
undirliggjandi lag fyrir bruna í 10 mínútur, til dæmis gifsplata sem
ver undirliggjandi spónaplötuklæðningu. Bókstafirnir B og D segja
til um hversu hratt eldur breiðist út í efninu. Flokkunin s1 og s2 segir
til um hversu mikinn reyk efnið framleiðir við bruna og dO flokkunin
segir til um að efnið dropi ekki niður þegar það brennur og breiði
þannig úteld.
iDlO
Brennanlegar utanhussklæðningar