Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 56
Mynd 1 Dæmi um prófun skv. NFPA 285.
Klæðning sem stenst prófið vinstra
megin, fellur á prófínu hægra megin. [4]
Prófanir fyrir ofangreinda klæðningarflokkun eru gerðar í smáum
skala oggefa því ekki fullkomna mynd af því hvernig efnin hegða sér
í raunverulegum bruna, á stærri skala. Smáskalaprófanir geta sagt
til um hversu auðvelt er að kveikja í efninu, en segja lítið til um
hvernig efnið hegðar sór þegar bruninn heldur áfram.
Grenfell bruninn er dæmi um svona áhrif, þar sem talið
er að hefðbundin klæðningarvottun hafi gefið til kynna
að eldútbreiðsla yrði takmörkuð, en í raunverulegum
aðstæðum virtust áhrif klæðningarinnar á eldútbreiðslu
vera mjög mikil.
Til eru staðlar fyrir prófanir á útveggjum úr brennan-
legum efnum í stærri skala. Ekki er þá eingöngu verið að
prófa brennanlegar klæðningar heldur einnig heildar-
uppbyggingu útveggja, með loftbilum og öðrum frágangi
og efnum sem hafa áhrif, t.d. einangrun. Dæmi um slíkan
staðal er NFPA 285 [2], sem byggir á brunaprófi í fullum
skala fyrir tvær hæðir, líkt og sjá má á mynd 1. Bruninn er staðsettur
á neðri hæðinni. Annar sambærilegur staðall er sænski staðallinn
SP Fire 105, þar sem prófin eru einnig gerð í fullum skala fyrir tvær
hæðir, auk brunahæðar neðst með hálfri lofthæð. [4]
Þá eru til staðlartil að prófa í stærri skala stálklæddar samlokueiningar
með einangrunarkjarna, sem oft eru notaðar t.a.m. í iðnaðarhúsum.
Hægt er að fá slíkar einingar bæði með óbrennanlegri einangrun og
einnig ýmsum tegundum af brennanlegri plasteinangrun. Staðallinn
IS013784-1 er ætlaður fyrir prófanir á smærri rýmum [5] og IS013784-
2 er ætlaður til prófana á stærri rýmum [6]. Staðlarnir eru ætlaðir til
að meta brunaþróun og eldútbreiðslu í rýmum úr viðkomandi
einingum, en ekki til að meta brunamótstöðu eða klæðningarflokkun
eininga. Þessar prófanir gefa mun betri mynd af því hvaða áhrif
samlokueiningar með brennanlegri einangrun hafa í stærri skala,
heldur en hefðbundin klæðningarvottun. Mynd 2 sýnir prófun skv.
IS013784-1, á litlum rýmum úr samlokueiningum með brennanlegri
einangrun (PIR) og steinullareinangrun. Myndin sýnir stöðu prófunar
ellefu mfnútum eftir tendrun bruna. Á þessum tímapunkti í
prófuninni sjást einhver áhrif PIR eininganna í dekkri og meiri reyk
(vinstri mynd), en áhrifin eru þó ekki komin fram nema að litlu leyti.
Síðar í prófuninni var munurinn mjög greinilegur, þar sem PIR
einingarnar ollu yfirtendruðum bruna mun fyrr. Yfirtendraður bruni
verður þegar hitastig í rými yfirstígur þau mörk sem þarf til að
kveikja í öllum brennanlegum efnum sem í rýminu eru, sem verður
þá samstundis alelda.