Upp í vindinn - 01.05.2018, Síða 60
finna í mörgum háhýsum sem hafa brunnið á undanförnum árum.
Utan á Grenfell turninum voru slíkar einingar með einangrunarkjarna
úr Polyethylene plasti (PE), og eru þær taldar hafa valdið hraðri
■ a ■■■ ai3 ■■■ ■ ■i
■ xi ■■■ iii ■■■ ■ i ■
■ ■■ ■■'■ b' B Q ■■■ 11 i
| II ■■■■■■ ■■■■■! [
Mynd 5 Útreikningará eldútbreiöslu
með brennanlegri utanhússklæðningu,
með og án vinds.
eldútbreiðslu milli hæða. Einnig eru til sams konar einingar með svo-
kölluðum FR einangrunarkjarna („Fire Resistant"), þessar einingar
eru með 70 % steinefnahlutfall á móti plastefninu og eru því mjög
tregbrennanlegar. Einingarnar uppfylla B-s1,d0 brunavottun skv.
ÍST EN1350T1 og eru því með yfirborð íflokki 1, en þær uppfylla ekki
viðmiðunarkröfur sem gerðar eru til regnhlífar skv. byggingar-
reglugerð, sem er A2-s1,d0. Því þarf að sýna sórstaklega fram á í
brunahönnun viðkomandi byggingar að slíkar einingar uppfylli
meginreglur um að yfirborðsfletir valdi ekki sérstakri hættu á
útbreiðslu elds milli brunahólfa eða bygginga.
BrunataBknilegir
/.
utreikningar og lausnir
Hægt er að beita brunatæknilegum útreikningum til að útfæra
klæðningar og leggja mat á brunahættu vegna brennanlegra
klæðninga. Myndin fyrir neðan sýnir dæmi um hermun sem
framkvæmd var á eldútbreiðslu í veggfleti með timburklæðningu, til
að meta áhrif timburklæðningar á eldútbreiðslu milli brunahólfa,
lóðrétt og lárétt. Reiknað var með albruna í 90 m2 íbúð á
annarri hæð í fjögurra hæða húsi. Varfærið var reiknað með því
að allir gluggar sem brotna og hleypa hita og reyk út séu á
sömu hlið íbúðarinnar. Útreikningar voru framkvæmdir með
Fire Dynamics Simulator sem er sérhæft straumfræðiforrit
sem ætlað er til brunatæknilegra greininga. [12] Skv. mynd 5
sýna útreikningar að eldur breiðist mikið upp á við en mjög lítið
til hliðanna. Vindur hefur þó áhrif á eldútbreiðslu til hliðanna.
Engin eða hverfandi hætta er á eldútbreiðslu niður á við.
Mynd 6 Útreikningar á eldútbreiðslu
með brennanlegri utanhússklæðningu,
sem sýnir eldsútbreiðslu milli brunahólfa.
Mynd 6 sýnir einnig dæmi um áhrif óvarinnar timburklæðningar á
eldsútbreiðslu á milli hæða. Reiknað er með staðbundnum bruna í
rýminu við gaflinn, með opnum glugga. Útreikningarnir sýna skjóta
eldsútbreiðslu milli íbúða við gafl, þó svo að 1,2 m bil sé á milli
óeldvarinna glugga líkt og byggingarreglugerð gerir kröfu um. Ekki
hefur verið tekið tillit til áhrifa brennanlegra klæðninga á
viðmiðunarreglu um 1,2 m Ijarlægð milli glugga, sem miðast við
óbrennanlegar klæðningar. Eldur nær að berast með klæðningu
...upp i''vindinn
60