Upp í vindinn - 01.05.2018, Qupperneq 61
upp að glugga næstu hæðar, þar sem logar geta náð til t.d.
gluggatjalda f gegnum opnanleg fög eða þá að varmageislun frá
logum getur verið nægjanlegt til að valda íkveikju í gegnum lokaðan
glugga. Á síðari stigum getur gler efri hæðar einnig sprungið vegna
hitans og eldur og reykur þannig átt leið inn í næstu íbúð.
Ýmsir þættir hafa áhrif á þá hættu sem skapast af brennanlegum
klæðningum útveggja. Það getur verið ásættanlegt að vera með
brennanlegar klæðningar, t.d. timburklæðningar, ef aðrar bruna-
varnir koma á móti eða ef sérstakar ráðstafanir eru gerðar með
frágangi á klæðningu, t.d. efnisvali og frágangi í loftbili. Hægt er að
sýna fram á öryggi slíkra lausna og áhrifa með útreikningum, líkt og
byggingarreglugerð gerir kröfu um.
Með útreikningum er meðal annars hægt er að bera saman
mismunandi klæðningar, t.d. timbur með mismunandi rúmþyngd,
sem og mismunandi frágang á klæðningum til að lágmarka hættu.
Hægt að vera með sérstakar lokanir í loftbili sem hefur mikil áhrif á
eldútbreiðslu, og hægt er að sýna fram á áhrif þess með út-
reikningum. í tilfelli iðnaðarbygginga úr brennanlegum samloku-
einingum, þá er einnig hægt að beita útreikningum til að útfæra og
sýna fram á að brunavarnir s.s. reyklosun haldi hitastigi niðri, sem
lágmarkar áhættu við notkun brennanlegra eininga í byggingum.
DaBITiÍ um bruna Þær klæðningar sem valdið hafa vandamálum í háhýsabrunum víða
um heim eru flestar úr þunnum samlokueiningum með álkápu og
brennanlegri plasteinangrun. Hafa margir slíkir brunar orðið f Dubai,
þar sem mikið er um háhýsi. Frá árinu 2012 hafa verið gerðar auknar
kröfur til slíkra klæðninga í Dubai og víðar og nú er í gangi mikil vinna
við að skipta út slíkum klæðningum eða grípa til ráðstafana til að
dragaúrhættuísamvinnuyfirvalda,tryggingarfélagaog húseigenda.
Mynd 7 Mynd afbruna ÍAddress
hótelinu i Dubai 2016. [13]
Mynd 7 sýnir dæmi um háhýsabruna í Address
hótelinu í Dubai árið 2016, en hótelið er 63 hæðir.
Utan á byggingunni voru álklæddar samloku-
einingar með brennanlegum einangrunarkjarna.
Samkvæmt upplýsingum í fjölmiðlum kviknaði
eldurinn vegna rafmagnsbilunar í útiljósi/kastara á
milli fjórtándu og fimmtándu hæðar. Þar sem
bruninn átti upptök sín utanhúss lét bruna-
viðvörunarkerfi ekki vita af brunanum tímanlega, en
hans varð fyrst vart af hótelgesti á átjándu hæð.
Engir létu lífið í brunanum en nokkrir slösuðust og
61
Brennanlegar utanhussklæðningar