Upp í vindinn - 01.05.2018, Síða 62
Mynd8 Mynd afGrenfell brunanum í
London 2017. [14]
eigna- og rekstrartjón var gríðarlegt. Viðgerðir á
byggingunni tóku um tvö ár.
Fjórtánda júní 2017 kviknaði eldur í íbúð í Grenfell
íbúðaturninum í London, þar sem um 70 manns
létust. Um er að ræða mjög stóran atburð sem hefur
nú þegar haft áhrif og mun hafa áhrif á næstu árum
og áratugum á brunakröfur og brunahönnun
bygginga. Mynd 8 sýnir hvernig eldur náði að
breiðast upp bygginguna í klæðningunni. Jafnframt
sést að eldur logar inni á mörgum hæðum
byggingarinnar. Líklegt er að eldurinn hafi breiðst á
milli hæða fyrir tilstilli brennanlegu klæðningarinnar og frágangs á
henni. Af lýsingum á brunanum í fjölmiðlum að dæma lítur út fyrir að
flóttaleiðir innanhúss hafi einnig teppst og brunahólfun innanhúss
hefur því jafnframt ekki verið sem skyldi. Samverkandi þættir hafa
orsakað það mikla mann- og eignatjón sem þarna varð.
Lokaorð Nú nýverið varð bruni í sjúkrahúsi í Istanbúl, Tyrklandi, þar sem
brennanlegar klæðningar virðast hafa valdið eldútbreiðslu milli
bygginga eða mismunandi byggingarhluta líkt og mynd 9 sýnir.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að eldurinn hafi að mestu verið í
klæðningu utanhúss og í þaki og að ekki hafi orðið manntjón. En
eignatjón er mjög mikið ásamt röskun á starfsemi spítalans.
Strangari kröfur þarf að gera til brunavarna í byggingum sem hýsa
mikilvæga innviði, líkt og sjúkrahús, þar sem brunatjón getur haft
mikil þjóðhagsleg áhrif og afleidd áhrif á öryggi fólks.
Mynd 9 Mynd afbruna ísjúkrahúsi í
Istabul 2018. [15]
Eins og fyrr sagði eru brunakröfur til klæðninga með því strangasta
sem gerist á íslandi. Þá er byggð einnig lágreistari á íslandi en víða
annars staðar, sem takmarkar áhættuna. Því er ólíklegra að
sambærilegir atburðir gerist á íslandi og þeir hér hefur verið fjallað
um. Mikilvægt er að læra af reynslu annarra og gera viðeigandi
kröfur þannig að öryggi sé tryggt.
Ákjósanlegt getur verið að hafa sveigjanleika í vali á klæðningum,
með tilliti til orkunotkunar, rakaflæðis og eðlisfræði bygginga, sem
og útlitskrafna og hagkvæmni. Alltaf þarf að tryggja að gerðar séu
ráðstafanir í brunavörnum til að tryggja nægt öryggi. Byggingar-
reglugerð krefst þess að gerð sé sérstök grein fyrir lausnum og sýnt
fram á öryggi þeirra sé viðmiðunarreglum ekki fylgt. Byggingar-
reglugerð og leiðbeiningar hafa ekki fylgt eftir þróun í breyttri
efnisnotkun og útfærslu útveggja. Brennanlegar útveggjaklæð-
...upp í'vindinn
62