Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 64
rrjjimkv^emclir isiakp og Aarslsff \/ið
nyja stoi'skipahöfn i Graanlandi
Aron Örn Karlsson
Á síðasta ári urðu tímamót í Grænlenskum samgöngumálum þegar
nýja stórskipahöfnin Sikuki Nuuk Harbour var tekin í notkun þann
14. ágúst.
Nýja höfnin er tvöfalt stærri en Atlantshöfnin sem hefur verið aðal
umskipunarhöfn Grænlendinga sfðan 1952 og miklar vonir voru
bundnar við. Nýja höfnin verður mikil lyftistöng fyrir samfélagið og
atvinnulíf Grænlendinga.
Hafnarframkvæmdirnar hófust í febrúar 2015 og var verkið alverk.
ístak og Per Aarsleff unnu saman að verkinu. Verkþættirnir
voru margir og fjölbreytilegir, þ.e. 3 byggingar með rúmlega
5.000 fermetra flatarmál, 350.000 rúmmetrar af landfyllingu með
sprengdum massa, 360 metra viðlegukantur, 1 km grjótvörn,
40.000 rúmmetra dýpkun, 48.000 fermetra hellulagt hafnarsvæði
með plássi fyrir 3.290 TEU og þar af 500 frystigáma.
Einn af þeim verkþáttum sem reyndi verulega á verkið voru
neðansjávar sprengingar. Það átti að Ijarlæga 18.000 rúmmetra af
klöpp og nýta efnið sem landfyllingarefni. Hér þurfti að taka mikið
tillit til neðansjávar hljóðbylgna og hávaða sem myndi eiga sér stað
við sprengingu og hvaða áhrif það myndi hafa á sjávarlífríkið. Talið
var að neðansjávar sprengingarnar gætu skaðað heyrn eða haft
áhrif á hegðunarmunstur hjá hvölum og selum sem væru ífirðinum.
Til þess að vera innan leyfilegra marka mátti hver hola ekki innihalda
meira en 20 kg af dýnamíti, hver hola þurfti að vera á sér númeri og
lágmark 25 ms á milli. Heildarmagnið í hverri sprengingu mátti ekki
vera meira en 560 kg. Þetta gerði það að verkum að það þurfti að
fara tvisvar sinnum yfir þau svæði þar sem klöppin var hæst. Til að
reyna að minnka hljóðbylgjuna og hávaðann voru lagðar tvær 50
metra loftbólugardínur sem blésu 8,3 m3/mín. af lofti hvor, við þetta
lækkaði hávaðinn um 12-15 db. Einnig var notast við minni
sprengingar 15, 10 og 5 mínútum fyrir hverja sprengingu til þess
hræða dýrin í burtu. Gerðar voru hljóðmælingar af hverri einustu
sprengingu og athugað hvort hávaðinn hefði verið innan leyfilegs
...upp Ívindínn
64