Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 68
Snjall samgöngur (e. Smart mobilit\/)
®
# 6
2-mj
•l jjnpi '
.fst
Hrönn Karólína Soh. Hallgrímsdóttir
Ör tækniþróun hefur átt sér stað undanfarin misseri. Margt hefur
breyst frá fyrstu Apple tölvunni sem kom á markað árið 1976. Nú
erum við nettengd hvar sem er og verður internetið einungis
öflugara með tímanum. Margir hafa eflaust heyrt um sjálfkeyrandi
bíla, en sjálfkeyrandi bílar væru ekki
raunveruleiki ídagán nettengingar, Internet
of Things (loT) og gervigreindar. Líkt og á
mörgum sviðum hefur orðið mikil þróun í
samgöngum. Ýmsar deiliþjónustur hafa litið
dagsins Ijós s.s. farveitur, deilihjól og
deilibílar svo fátt eitt sé nefnt. Breytt
hegðunarmynstur er að sjá, en margir kjósa
að ferðast á ýmsan máta en með þægindin
í fyrirrúmi. Því hafa til að mynda deili-
______________________ þjónustur á borð við Uber, Lyft, Crabi og
MoBike notið grfðarlegra vinsælda víðs-
vegar um heim. Deiliþjónustunum er oft ætlað fyrir stuttar ferðir til
og frá t.a.m. stoppistöðvum (e. First and last mile) sem geta gjarnan
reynst erfiðar og/eða flóknar. Mikil barátta er um markaðinn í dag
ogeru bílaframleiðendurengin undantekning.
Blfaframleiðenclur Bílaframleiðendur hafa verið að fylgjast með þeirri þróun sem er að
eiga sér stað og breyttu ferðamynstri fólks. Framleiðendur eru farnir
að hugsa út fyrir þá hefðbundnu starfsemi að framleiða og selja bíla
og hafa nokkrir sett á laggirnar deiliþjónustur. I mörgum borgum í
Bandaríkjunum hefur Ford sett upp deilihjól á sínum vegum og
einnig komið með þjónustu sem heitir Chariot sem svipar til
strætóþjónustu með fastar leiðir þar sem hægt er að bóka far.
Volkswagen voru að hefja starfsemi í Þýskalandi með Moia sem er
ámóta Chariot nema að ekki er um fastar leiðir að ræða heldur er
farþegi sóttur á ákveðinn stað og er þá notast við reiknilíkan til að
reikna út hagkvæmustu leiðina. Volkwagen hefur einnig fjárfest í
Gett frá Bandaríkjunum sem er leigubílaþjónustu.
Blockchain Mikið gengur út á afla gagna í dag. Gögn bílsins eiga eftir að vera
meira virði en bíllinn sjálfur í framtíðinni. Öllum gögnum er safnað
fyrir á einum stað, blockchain, frá öllum áttum. Því umfangsmeiri
sem gögnin eru, því betri greining verður á umferðarflæðinu. Nú er
...upp í'vindinn
68