Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 69
Breytt viðhorf
SamþaBtting
samgöngumáta
verið að skipta um umferðarljós á nokkrum stöðum í Reykjavík, en í
dag eru þau öll tímastillt. Þar af nær 70% með grænar bylgjur til að
auðvelda umferðarflæðið. Með grænum bylgjum er átt við umferðar-
Ijós sem eru samstillt þannig að hægt er að aka á jöfnum hraða á
grænu Ijósi innan ákveðinna umferðarljósa. Eru nýju Ijósin ætluð til
að skila aukinni umferðarhagræðingu með skilvirkari gagnaöflun.
Gögn þessi geta einnig verið frá Google Maps (þar sem nú þegar er
hægt að greina umferðarflæði ákveðins tíma dags), snjallsímum,
Strava frá hjólreiðamönnum, bifreiðum o.fl. Áætlað er að um 4.000
GB muni komi frá einum sjálfkeyrandi bíl á hverjum degi. Víðsvegar
erlendis tíðkast það að greiða ferðir sínar í gegnum snjallsíma,
skönnun ágreiðslukorti eða með andlitsskanna. Þó megin hugsunin
sé að flýta fyrir greiðslu og þar með lágmarka tafir, þá safnast öll
þessi gögn til frekari greiningar á einum stað úr öllum áttum (nefnist
Blockchain). Stór hluti af því sem við gerum í dag er til að afla gagna
til undirbúnings fyrir framtíðina þar sem hugsjónin er að koma á fót
snjall borgum þar sem snjall samgöngur munu vera stór hluti af.
Framtíðarsýnin er að hægt verði að velja milli mismunandi sam-
göngumáta sem kemur fólki á skilvirkan og þægilegan máta frá
upphafsstað og á endastað, með þeirri tækniþróun sem er að eiga
sér stað í dag og öðru viðmóti ungra kynslóða.
Hugsunarháttur er að breytast með nýjum kynslóðum, kynslóðum
X og Z (e. Millenials). Rannsóknir hafa sýnt að til framtíðar munu
færri eiga bíl og taka bílpróf. Sú þróun er þegar farin að eiga sér stað
hér á íslandi þar sem sífellt færri eru að taka bílpróf. Nýjar kynslóðir
munu þess í stað styðjast við mismunandi samgöngumáta s.s.
almenningssamgöngur, deiliþjónustur ogjafnvel sjálfkeyrandi bíla.
Talið er að í kringum 2030 munu kynslóðir X og Z vera 22 milljónum
fleiri á heimsvísu en eldri kynslóðir (e. Baby boomers). Þessar nýju
kynslóðir eru taldar tæknivæddari og opnari fyrir nýrri tækni sem
rekja má til vinsælda á deiliþjónustum þar sem þægindi og auðveld
notkun er i fyrirrúmi og stuðst er við snjallsíma við greiðslu og
pöntun áferð.
Framboð á mismunandi samgöngumátum auðveldar mönnum að
ferðast án þess að eiga bíl, sem virðist vera þróunin hjá nýjum
kynslóðum. Því er hægt að nýta mismunandi deiliþjónustur fyrir
fyrsta og síðasta kílómetrann, sem reynist oft erfiður, t.a.m. til að
koma sér til og frá stoppistöðvum. Margar deiliþjónustur er að finna
víðsvegar um heiminn t.d. Uber, Lyft, Grabi, Zip car sem er einnig að
finna hér á landi sem og Karitas. Einnig hafa sprottið upp mikið af
deilihjóla fyrirtækjum, t.d. Ofo, Mobike og Wow air hérlendis.
69
Snjall samgöngur (e. Smart mobility)