Upp í vindinn - 01.05.2018, Side 73
Mynd 1 Dægurlofthiti í Grafarholti, október2008
til aprí/2009 (upprunigagna: Orkuveita Reykjavíkur)
apríl 2009. Á myndinni eru um 10
lengri frostkaflar, sem vara 1-3 vikur í
senn, lengst í byrjun febrúar. Einnig
getur skipst ört milli frost og þýðu,
eins og sést seinni hluta nóvember.
Jarðvegshiti er mun stöðugri og ekki
jafn sveiflukenndur og lofthiti því
varmaflæði frá yfirborði og niður í
jarðveg er hægt ferli sem fer að
mestu leyti fram með leiðni.
Jarðvegshiti ákvarðast af ýmsum
stærðum svo sem breiddargráðu, árstíma, rakainnihaldi jarðvegs,
þekju yfirborðs og veðri. í Reykjavík verður hæsti jarðvegshitinn í
kringum 13-14°C í júlí eða ágúst. Lægsti jarðvegshitinn í Reykjavík
mælist í janúar-mars og hann er um frostmark (Guðrún Nína
Petersen, 2018).
Ósamfellcl snjoþekja yfii
veírarmanuðina
Snjótímabil Fjöldi daga Lrftími samfelldrar snjóþekju (dagar)
Vetur Upphaf Endir Fjdaga Snjólaust (0%) 100%snjó- þekja Mið Meðal Fjskiptasem snjóþekja hvarf
2014-15 21/10 11/04 174 71 75 4,5 53 18
2015-16 25/10 29/03 158 64 64 2 56 11
2016-17 16/H 22/03 127 61 41 2 4,4 15
Tafla 2 Snjóþekja iReykjavík2014-2017(byggt á gögnum Veðurstofu íslands)
Að jafnaði varir snjóþekja einungis nokkra 2-4 í senn í Reykjavík
(tafla 2), sem er mjög frábrugðið því sem gerist í öðrum löndum í
köldu loftslagi, þar sem snjóþekjan varir samfleytt í nokkra og bráð
fer fram í á nokkrum dögum eða vikum í mars og apríl (Moghadas,
2016). Frá sjónarhorni fráveituverkfræðingsins þýðir þetta að
snjórinn hreinsar sig hratt í Reykjavík. Því er nauðsynlegt að rýna í
veðurgögn og fréttir, og finna verstu snjóbráðsatburði sem valda
flóðum í Reykjavík. Að sama skapi þýðir þetta að snjórinn er
mögulega ekki eins þéttur í sér, því hann hefur ekki staðið eins lengi.
Snjódýpt hefur verið mæld í Reykjavík að mestu samfellt frá 1921,
fyrst í miðbænum og á veðurstofuhæð eftir 1945. Úrvinnsla
snjómælinga yfir þriggja ára tímabil frá Veðurstofu íslands gefur til
kynna að tímabilið frá fyrstu til síðustu snjóþekju er frá 4,2 til 5,8
mánuðir. Á þeim tíma er snjólaust 40-50 % af tímanum. Fjöldi
mánaða með fulla snjóþekju yfir öllu er um 1-2,5.
Snjor og leysingar í'þáttbýli
73