Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 74
Breytilelkl snjos \
borgarumhverflnu
Mynd 2 Þverskurður afsnjó í Urriðaholti
16.02.2018. a) Hreyfður skafl og ruðningur. b)
Við gangstétt/vegg. o) á opnu iúpínusvæði og i
manngerðum svelg.
74
Eftir bestu vitund, þá hafa ekki verið mældir eiginleikar snjó-
þekjunnar, s.s. eðlisþyngd, í Reykjavík. Því var framkvæmd
vettvangsrannsókn í Urriðaholti, í Garðabæ. Snjóað hafði nokkrum
sinnum 2 vikur fyrir mælingar. Það rigndi morguninn fyrir mælingar,
en í lok mælitímabilsins var komin sól. Niðurstöður mælinganna
staðfesta að mjög misleitur snjór var í skafrenningum þar sem vélar
hafa skafað snjó af götum og upp á gangstétt (mynd 2a).
Rennslisrásir (holrými) og ískögglar sáust bæði ofan á og inni í
snjóhaugnum. Snjór á götum og við vegg var lagskiptur (mynd 2b),
en bera þarf í huga að hverfið var í uppbyggingu ogjarðvegur getur
hafa fokið úr opnum um. Snjór á náttúrulegum og manngerðum
gróðursvæðum var hins vegar meira einsleitur, en oft þéttari við
jörðu (mynd 2c). Greiningar af Ijósmyndum gáfu til kynna að
endurvarp frá misleitum snjó var lægra, eða um 0,5, en af óhreyfðum
snjó (0,6-0,7). Þetta er í samræmi við að hreyfður snjór dragi í sig
mig meiri geislun, og bráðni því hraðar en óhreyfður snjór við
byggingar og á opnum svæðum.
...upp ('vindinn