Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 80
Jarðvegsmengun og tengsl hennar
\/ið grunnvainsmengun
g Rannveig Anna Guicharnaud
tm
rlvað 81' jarðvogs- Jarðvegur telst mengaður þegar hann inniheldur óeðlilega hátt
msngun? hlutfall frumefna eða efnasambanda sem getur haft skaðleg áhrif á
heilsu manna og dýra. Skaðlegu efnin geta verið bæði ólífræn og má
þar helst nefna þungmálma og lífræn og má þar helst nefna olíuefni,
klórberandi efni á borð við PCB, díoxín og skordýraeitur ýmis konar
svo eitthvað sé nefnt.
Þungmaimar
Oliu og kloi'b
/,
Jarðvegsmengun (
aðilclarn kjum
Evropusambanclsins
Þungmálmar eiga uppruna sinn að rekja til jarðskorpunnar. Bæði
menn og dýr innbyrða lítið magn þungmálma með mat og drykk.
Flestir þungmálmar eru nauðsynleg næringarefni fyrir allar lífverur
en ef styrkur þeirra er lítill kemur fram skortur ogef styrkur þeirra er
hár fer að gæta eituráhrifa. Of háan styrk þessara málma má rekja
til iðnaðar en einnig landbúnaðar og svifryks. Þungmálmar berast í
menn og dýr þegar styrkur þeirra verður meiri en geta jarðvegsins
til að binda þá. Þegar slíkt gerist aukast líkur á útskolun málmanna í
grunnvatn sem getur þar með valdið grunnvatns- og neysluvatns-
mengun. Útskolun þungmálma fer því eftir bindigetu jarðvegsins en
þeir eiginleikar sem ráða hvað mestu um bindigetu jarðvegs er
magn leirsteinda og lífrænna efna. Þetta leiðir til þess að plús (+)
hlaðin næringarefni og málmar bindast auðveldlega mínus (-)
hlöðnum jarðvegsögnum (leir og kolefnisagnir) sem kemur í veg fyrir
útskolun þeirra í umhverfið. í þessu sambandi má einnig nefna
sýrustigjarðvegsins. Við hækkun sýrustigs mynda til dæmis margir
þungmálmar torleyst hýdróxíð eða bindast yfirborði leiragna.1
Olíu og klórberandi efni flokkast undir lífræn mengunarefni. Lífræn
mengunarefni hafa verið nefnd þrávirk þar sem þau brotna hægt
niður í náttúrunni vegna flókinna lífrænna efnasambanda eða stórra
sameinda sem erfitt er að sundra. Þau eru talin vera einkar skaðsöm
öllum lífverum en þau safnast upp í fituvefjum lífvera og magnast
eftir því sem þau færast ofar í fæðukeðjuna.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur viðurkennt að
jarðvegsmengun sem vandamál í Evrópu. Áætlað er, byggt á
gögnum frá 28 af 39 aðildarríkjum Evrópusambandsins, að þörf só
talin á að rannsaka 2,5 milljón svæði í Evrópu með tilliti til jarðvegs-
...upp ivindinn
80