Þroskaþjálfinn - 2024, Síða 24

Þroskaþjálfinn - 2024, Síða 24
46 47 STORM Skammstöfunin STORM stendur fyrir Standing Up For Myself, en STORM er verkefni sem hrint var af stað í Bretlandi árið 2018 eftir að hugmyndin hafði verið í vinnslu í einhver ár. STORM er hópavinna sem miðar að því að vald- efla fólk með þroskahömlun. Aðferðin byggist á fjórum klukkutíma hóptímum og einum eftir- fylgnitíma. Notast er við myndbönd og fræðslu, en þátttaka hvers og eins í hópnum er mikil- væg. Svo eru skipulögð næstu skref fyrir hvern þátttakanda fyrir sig. Á meðal lykilskilaboða STORM eru þessi: 1. tími: Þroskahömlunin er bara hluti af mér. 2. tími: Það er ekki í lagi að fólk komi illa fram við mig. Ég þarf ekki að sætta mig við það. 3. tími: Ég get staðið með sjálfum mér (spyrnt við fótum) ef einhver kemur illa fram við mig. 4. tími: Ég get búið til áætlun um það hvernig ég stöðva fólk ef það kemur illa fram við mig. Fólk sem ég treysti getur hjálpað mér. Að auki (booster): Það getur eitthvað truflað það að áætlunin mín takist. Þá tala ég við aðra um hvernig best sé að bregðast við og gefst ekki upp. Rannsóknir með fólki, en ekki um það … Þegar STORM-verkefnið var komið af stað kom Covid og þá þurfti að búa til fjarfundadagskrá til þess að halda starfinu áfram. Það var gert og tókst vel eftir að vel hafði verið hugað að öll- um þeim þáttum sem hefðu getað truflað, m.a. tæknihindrunum. STORM-verkefnið hefur reynst vel fyrir þá sem hafa tekið þátt í því. Þeir hafa öðlast meira sjálfsöryggi og eru tilbúnir að standa fast á sínu ef að þeim er vegið. Þeir hafa lært að segja sína skoðun (í stað þess að þegja) og náð að takast betur á við erfiðar tilfinningar. Nokkrir þeirra einstaklinga sem höfðu ver- ið í STORM-verkefninu voru á ráðstefnunni og tjáðu sig um reynslu sína. STORM-teymið (skipuleggjendur og þátttakendur með þroska- hömlun) hefur verið að vinna úr niðurstöðum og meta hvað gekk vel og hvað má bæta. Þau leggja áherslu á að rannsóknirnar og starfið allt sé innsamað/inngilt (inclusive). Þau gera ekki rannsóknir um fólk með þroskahömlun heldur með því. Uppistand með Peter Cronin Skemmtilegasti fyrirlesturinn á ráðstefnunni var fyrirlestur Peters Cronins, sem var einn af lykilfyrirlestrunum. Cronin, sem er með þroskahömlun, kom fram með aðstoðarmanni Þeir Peter Cronin og Eddie Chaplin héldu saman frábæran fyrirlestur. sínum og vini Eddie Chaplin og samvinna þeirra á sviðinu var ekkert minna en stórskemmti- leg. Eftir fyrirlesturinn bað einn af Bretunum (einstaklingur með þroskahömlun) um orðið og þakkaði þeim félögum og sagði að þetta hefði verið eins og besta uppistand. Og það var hverju orði sannara. Fyrirlestur Peters Cronins hét „Supporting my friends with intellectual disabilities to manage their mental health“. Peter og Eddie hafa unnið lengi saman við að þróa aðferðir fyrir Peter til þess að honum líði betur. Þetta eru oft einföld, en áhrifarík, ráð sem hjálpa honum að takast á við kvíða og depurð. Hann hefur gefið út bækur sem hægt er að sækja án endurgjalds á netið þar sem þessar aðferðir eru settar fram á einfaldan og oft myndrænan hátt svo að aðrir geti nýtt þær líka (https://www.stevehardyldn.com/pet- er-and-friends-series). Þó að fyrirlesturinn fjalli um alvarleg mál þá er svo gaman að hlusta á Pet- er segja frá að salurinn lá í hláturskasti nær allan tímann sem hann var á sviðinu. Sýnileiki og þátttaka aðalviðfangsefni næstu ráðstefnu Það var eftirtektarvert að á meðal þeirra sem héldu fyrirlestra á ráðstefnunni í Helsinki voru nokkrir einstaklingar með þroskahömlun og á meðal atriða á opnunar- og lokaathöfninni var tónlistarfólk úr þeirra röðum. Sýnileiki og þátt- taka. Þetta var ánægjulegt og gerði mikið fyrir ráðstefnuna. Næsta ráðstefna verður haldin í Gent í Belgíu í september 2025 og hefur yfir- skriftina Unleashing Talent Embracing Diversity, en þar verða einstaklingar með þroskahöml- un í forgrunni. Þeir munu taka virkan þátt í skipulagningu og undirbúningi og fá mikilvæg hlutverk í öllum þáttum ráðstefnunnar. Hljómsveit skipuð fólki með þroskahömlun spilaði bæði á opnunar­ og lokaathöfninni.

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.