Jólablaðið - 15.12.1944, Blaðsíða 4

Jólablaðið - 15.12.1944, Blaðsíða 4
★ ★★★★★ ★★★★★★ guðdómlegum kærleika til að hjálpa þar, sem sem eitthvað íer aflaga, og öllum, sem eitthvaö amar að. Jólin ættu að knýja oss öll til þess, að hugsa um hið mikla mál: Hverrúg getur mannlítið orð- ið bjart, hamingjurikt og fagurt? Hvernig get ég losnað úr margvíslegum fjötrum, sem varna mér frelsis, sannrar gleði og hamingju? Hvern- ig get ég losnað úr fjötrum þeirra tilhneiginga í brjósti sjálfs mín, sem eru í vegi fvrir ham- ingju minni og innra friði? Jólaboðskapurinn kemur til þin með skýrt og ákveðið svar: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Ef heimurinn vildi hlusta og tileinka sér þennan boðskap, þá mundu hersveitirnar á jörðu, allar miljónirnar, sem nú bera vopn í hönd, leggja vopnin niður og hætta bræðravíg- um. Þá mundu þær fara úr hermannabúningn- um og taka á sig önnur klæði — klæði endur- bótamannsins, sem vill fórna sér til þess að gera jörðina að betri heimi og bjartari, sem vill rétta hinum undirokuðu bróðurhönd, fækka sár- um og tárum, en kveikja Ijós gleði og kærleika í lífi annarra manna í anda Krists, sem lét lífið í kærleiksþjónustu sinni. Nú taka jólaklukkurnar að hringja. Heimur- inn er í sárum. Mannkynið þráir frið — misk- unn. Hjá Kristi er allt að finna, sem mannkynið þráir bezt. Heitasta óskin, sem nú býr í brjóst- um flestra manna, kvenna og barna, á þessum jólum — friðaróskin, mun uppfyllt verða á sömu stundu, er hann, sem á jólunum fæddist, fær að stjórna huga og hönd. Hann sagði: „Minn frið gef ég yður.“ Biðjum guð að gefa heiminum frið og tendra ljós, þar sem kalt er og dapurlegt — ljós Krists- andans. Verði Kristur ljós Islands, Ijós allra landa og þjóða. Þá er bjart yfir framtiðarvegum. 2 JÓLABLAÐIÐ

x

Jólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.