Fréttablaðið - 28.10.2017, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR • FRÉTTABLAÐIÐ
28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR
Veöur
4° kf5
4“ 'ilÁ
5° ThO
7“ "N4
7° 3
Norðan 5-13 m/s i dag. Léttskýjað
sunnan- og vestanlands, en skýjað
norðaustan til á landinu og dálitil él
þar síðdegis. Hiti 5 til 10 stig, en fer
kólnandi síðdegis. SJÁSÍÐU54
Vinstri stjórn
í kortunum
kosnincar Samtal um myndun
ríkisstjórnar frá vinstri til miðju er
komið á fullt milli nokloirra flokka.
Þetta herma heimildir Fréttablaðs-
ins. Einn viðmælandi blaðsins geng-
ur svo langt að fullyrða að vinstri
stjórn verði svo gott sem innsigluð
strax á kosninganótt.
Vinstri græn og Samfylking eru
burðarásarnir í þeirri stjórn sem er
í kortunum. Flokkarnir tveir ná 24
mönnum á þing samkvæmt nýjustu
könnun Fréttablaðsins og vantar því
átta þingmenn til að ná meirihluta
á þing. Enginn þeirra þriggja flokka,
Viðreisn, Framsóknarflokkur og
Píratar, sem sagðir eru eiga aðild að
því vinstra samtali sem er í gangi,
hefur nægan þingmannafjölda til
að hægt sé að mynda þriggja flokka
stjórn, miðað við nýjustu kannanir.
11 Vinstri græn og Sam-
Sigurður Jóhannesson tók á móti þremur brettum af frosnum hákarli í vikunni. Hann var að undirbúa hákarlinn undir verkun þegar ljósmyndara
Fréttablaðsins bar að garði í Gróttu. Fyrst þurfti Sigurður auðvitað að ganga úr skugga um að allt væri með felldu og fékk sér vænan bita. Næst þarf
að leyfa hákarlinum þiðna. Hann er síðan settur undir farg og að lokum látinn hanga. Hákarlinn er svo tilbúinn eftir tvo mánuði. fréttablaðið- eyþór
Formaöurinn getur
ekki kosiö flokkinn
Pálmey Gísladóttii; formaöur Dögunar, er búsett í Reykjavík en flokkur hennar
býóur einungis fram í Suóurkjördæmi þar sem hún er á ffamboóslista. Hún
hefur ekki ákveöió hvaöa stjórnmálaflokkur fær atkvæöi hennar á kjördag.
Pálmey er ekki búin að ákveða hver fær atkvæði hennar. fréttablaðið/ernir
fylking ná 24 mönnum á
þing samkvæmt könnun
365.
Forystumenn Vinstri grænna og
Samfylkingarinnar eru hins vegar
með ólík sjónarmið um hverjir
þessara flokka eigi að mynda límið
í stjórn; Framsóknarflokkurinn eða
Viðreisn báðir saman eða annar
hvor þeirra að Pírötum viðbættum.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins vilja Samfylkingarmenn heldur
mynda stjórn með Pírötum og Við-
reisn enda eiga þessir flokkar mun
meira sameiginlegt málefnalega
en Samfylkingin og Framsóknar-
flokkurinn og má þá nefna bæði
stjórnarskrármálin og áherslur í
Evrópumálum.
Þá telja heimildarmenn blaðsins
líklegt að Samfylking gangi með
öðrum hvorum þessara flokka og
jafnvel báðum til formlegra við-
ræðna um stjórnarmyndun og leiki
þannig sama leik og Björt fram-
tíð og Viðreisn gerðu eftir síðustu
kosningar.-aá
Umfangsmikil
kosningavakt
STIÓRNMÁL Kosningavaktin á Vísi
hefst eldsnemma á kjördag en
blaðamenn Vísis munu standa
vaktina næstu tvo sólarhringa.
Aukafréttatími Stöðvar 2 hefst síðan
klukkan 12.00 en að þeim loknum
tekur Víglínan við. Þar ræðir Heimir
Már Pétursson við góða gesti um
stjórnmálin og kosningabaráttuna
sem senn erá enda.
Klukkan 20.40 á laugardag hefst
Risastóri kosningaþátturinn með
Gumma Ben en um leið og kjör-
staðir loka klukkan 22.00 tekur
fréttastofa Stöðvar 2 við. Þar verður
greint frá fyrstu tölum en frétta-
menn 365 verða í beinni útsendingu
frá kosningavökum flokkanna.
Á sunnudaginn klukkan 12.20,
eða strax að loknum aukafréttatíma
í hádeginu, tekur Heimir Már síðan
á móti formönnum flokkanna þar
sem farið verður yfir niðurstöður
kosninganna.-khn
STJÓRNMÁL „Ég hef nú fyrir reglu að
gefa ekki upp hvað ég kýs en ég get
ekki kosið Dögun þó ég sé á lista hjá
flokknum og formaður hans,“ segir
Pálmey Gísladóttir, formaður Dög-
unar, sem er búsett í Reykjavík og
getur því ekki kosið sinn eigin flokk
þar sem flokkurinn býður einungis
fram í Suðurkjördæmi fyrir alþingis-
kosningarnar2017.
Pálmey segist ekki búin að ákveða
hvaða stjórnmálaflokkur fær henn-
ar atkvæði í dag þegar hún mætir í
Ingunnarskóla í Grafarholti til að
kjósa.
„Ég er í rauninni ekki búin að
ákveða neitt. Það eru margir flokk-
ar sem eru með mjög góð málefni.
Þau eru öll í málefnaskrá Dögunar
og þeir virðast flestir hafa kosið að
taka þau upp. Ef ég fengi að ráða
væri öllum steypt saman í einn
flokk sem héti Dögun og við gætum
kosið hann. En ég er ansi hrædd
um að ruslatunriur landsins fyllist
á sunnudag af sviknum loforðum,"
segir Pálmey.
Formaðurinn tók við embættinu
hjá Dögun í janúar síðastliðnum.
Afskipti Pálmeyjar af stjórnmálum
hófust að hennar eigin sögn árið
2012 þegar hún tók þátt í stofnun
og var síðar kjörin varaformaður
Samstöðu.
Pálmey var í framboði fýrir Flokk
heimilanna í alþingiskosningunum
2013 og Dögun í kosningunum í
október í fyrra þar sem flokkurinn
fékk 1,7 prósent atkvæða. Báðir
flokkarnir buðu fram á landsvísu
og var Pálmey á framboðslistum í
Norðvesturkjördæmi en búsett í
borginni.
„Eg ólst upp í mjög pólitísku
á&M Ég er í rauninni ekki
búinaóákveða
neitt. Þaó eru rnargir góöir
ftokkar sem eru meó mjög
góó málefni.
Pálmey Gisladóttir,
formaöur Dögunar
umhverfi á Sauðárkróki þar sem
Framsókn réði en fjölskyldan
studdi Sjálfstæðisflokkinn. En mér
var kennt að maður ætti að skoða
málin frá öllum hliðum og að allir
hefðu sjálfstæða hugsun og getu til
þess að velja og hafna.
En ég er eins og kötturinn. Ég kem
alltaf niður á fæturna," segir Pálmey
Og hlær. haraldur@frettabladid.is
afsláttur af 210 stk. Nicorette
nikótínlyfjatyggigúmmii
• Allar bragðtegundir
• 2 mg og 4 mg
Fruitmint - Classic - Whitemint - Freshmint
Gildir til 12. nóvember 2017
Apótekarinn+
WWW.apotekarinn.iS - lægra verð