Fréttablaðið - 28.10.2017, Blaðsíða 52
«.52
HELGIN • FRÉTTABLAÐIÐ
28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR
KRAKKAR
Konráð ©
°efelagar
áferðogflugi
„Jæja Konráð," sagði Kata.
„Þú sem allt veist, hvað á
að gera hér?“ „Við eigum
að klippa út þessi fimm
form,“ sagði Konráð. „Og
*■ raða þeim þannigsaman
að þau myndi stóran
bókstaf." „Bókstaf,"
sagði Kata önug. „Ekki
segja mér að við eigum
að búa til bókstaf. Ég
get ekki séð að það sé
hægt.“ Róbert klóarði
sér í hausnum. Hann gat
heldur ekki séð hvernig
hægt væri að búa til
stóran bókstaf úr þessum
skrítnu formum.
Einari Kristni finnst skemmtilegt i íþróttaleikjum. fréttablaðid/anton brink
Er að bíða
eftir snjó
fyrir norðan
Gátur
Því meira sem hann fær, þeim mun gráðugri verður hann. Og þegar hann hefur hámað allt í
sig, deyr hann.
Hver er þetta?
Hverniggetur vel skóaður maður vaðið í hnédjúpu vatni án þess að skórnir vökni?
Hvað stendur opið á næturnar og er fullt af mannakjöti
á daginn?
Hver er það sem sýnir á sér nýtt andlit en hefur þó ekkert andlit sjálfur?
uuiillSads 'J!ujo>|s ainuo>|s e epiei! pe jac| p9i/\| uu]jnp|3 uoas
Listaverkið
Steindepill á flugi sem Sól-
ey Dagbjartsdóttir í 4. bekk
málaði.
Einar Kristinn Gunnarsson er tíu
ára og er í 5. bekk Oddeyrarskóla
á Akureyri. Honum finnst fyrsta
spurningin frelcar fáránleg. Er alltaf
snjór á Akureyri? Heyrðu, ég er nú
að bíða eftir snjó en það kemur
ennþá enginn.
Ertu skíðamaður? Ja, ég var einu
sinni í skíðaskóla en það gekk ekki
nógu vel. Ég fer samt stundum með
skólanum mínum upp í fjall.
Hvað finnst þér mest gaman að
læra? O, ég er ekki mjög mikið íyrir
að læra en mér finnst skemmtilegt í
íþróttum. Sérstaklega íþróttaleikjum.
Hver er besti vinur þinn? Ég á
nokkra vini en alveg besti vinur
minn er pabbi minn.
Hvað geriö þið helst saman? Ja,
við erum mest latir en okkur finnst
skemmtilegt að fara í sund.
Hvað gerið þið þegar þið eruð
latir? Ég horfi á vídeó og hann veipar.
Það hjálpar honum að hætta að reykja.
Hvaða dýr eru i uppáhaldi hjá þér?
Hundar, kettir og páfagaukar, ég á
þrjá páfagauka, þeir heita Engill,
Blámi og Perla.
Flottustu staðirnir á landinu?
Aluireyri og Reykjavík. Ég hef ekki
farið á alla hina staðina ennþá.
ÉGÆTLA AÐEIGA
PITSUSTAÐ SEM
HEITIR FREDDI FAZBEAR’S
PIZZA. ÞAÐ VERÐUR STAÐUR
FYRIR AFMÆLISVEISLUR OG
SVOLEIÐIS. ÉG MUN HAFA
VÉLMENNIÞAR SEM SYNGJA.
Hvað langar þig að verða? Ég ætla
að eiga pitsustað sem heitir Freddi
Fazbear’s Pizza. Það verður staður
fyrir afmælisveislur og svoleiðis. Ég
mun hafa vélmenni þar sem syngja.
Ætlar þú að baka pitsurnar sjálf-
ur? Nei, ég hef fólk til að gera það.
Er einhver staður í heiminum sem
þig langar að skoða? Já, Orlando. Ég
er að fara þangað eftir fjóra mánuði.
Hefur þú fariö til útlanda áður?
Einu sinni. Til Manchester í Eng-
landi. Ég fékk tvær byssur en þurfti
að henda þeim hálftíma áður en ég
fór í flugvélina af því fólk mundi
halda að þær væru alvöru.