Fréttablaðið - 28.10.2017, Blaðsíða 4
4
FRÉTTIR ■ FRÉTTABLAÐIÐ
28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR
lWSlM»WMII»WMlíWIWM«IWWWWWWWWWWWWWWWM«WWWWWWWWWWWWWWWWaWWWIII
TÖLUR VIKUNNAR 22.10.2017 TIL 28.10.2017
mánuóum
eftir að nemar í námi til lög-
gildingar fasteigna- og skipasala
við HÍ þreyttu lokapróf fengu þeir
einkunn í áfanganum. Prófgögnin
týndust þegar þau voru send í pósti
til kennara námskeiðsins sem býr í
Austurríki.
milljaróar
króna er umfram eigið fé í rikis-
bönkunum tveimur samkvæmt
greiningu hagfræðings Samtaka
fjármálafyrirtækja.
krónur eru greiddar úr rikissjóði á
ári til trúfélaga fyrir hvern skráðan
meðlim.
milljónum
króna varði Húnaþing vestra til
refa- og minkaveiða frá 1. sept-
ember 2016 til 31. ágúst 2017.
31-29
fyrir ísland voru úrslitin i vináttu-
landsleiknum við Svíþjóð.
kvenna eru með
yfir milljón króna í
laun á mánuði. 15
prósent karla eru
með yfir milljón á
mánuði.
Þrjú i fréttum
Koss, siöferöi
og iönnám
Brynjar Níelsson
alþingismadnr
bað Steinunni
Þóru Árnadóttur
afsölcunar á að
hafa spurt hvort
hann mætti
kyssa hana á
fundi Siðmenntar
sem sýndur var í
beinni útsendingu á Facebook.
Hann kvaðst með því hafa verið
að lýsa ánægju yfir málflutningi
hennar en kersknin hefði verið
misheppnuð.
Agnes M. Siguröardóttir
biskup
sagði ekki siðferði
lega rétt að stela
gögnum og fara
ábakviðfólk
til að afhjúpa
mál og leiða
sannleikann í ljós.
Ummælin vöktu
mikla athygli og voru þau sett í
samhengi við Lögbannsmálið svo-
kallaða. Hundruð hafa sagt sig úr
Þjóðkirkjunni í kjölfarið.
ChuongLeBui
víetnamskur matreiðslunemi
á Nauthóli, fékk s(
bréf frá Útlend-
ingastofnun
þess efnis að
hún hefði ekki
lengur land-
vistarleyfi sem
námsmaður. Hún
er búin með tvö ár á
námssamningi hjá veitingastaðn-
um af fjórum. í nýjum útlendinga-
lögum sem tóku gildi í janúar er
nám skilgreint sem samfellt nám
á háskólastigi. Ekki er minnst á
iðnnám í lögunum.
Kvartanir hrönnuöust upp í
vaxtaverkjum hjá WOW air
Samgöngustofu hafa borist hátt í 900 erindi vegna flugfélaga þaö sem af er ári. Fjöldinn hefur tvöfaldast tvö
ár í röö. Langflestar kvartanir snúa aö seinkunum hjá WOW air. Stór hluti kvartana til Samgöngustofu er til-
kominn vegna þess aö félagið hefur ekki svaraó. Neytendur i dag eru betur upplýstir um réttindi sín.
SAMGÖNGUR Algjör sprenging hefúr
orðið í fjölda kvartana sem Sam-
göngustofu berast ffá flugfarþegum.
Fjöldi erinda það sem af er ári hefúr
tvöfaldast frá því í fyrra eftir að hafa
tvöfaldast milli ára í fyrra sömu-
leiðis. Neytendur eru betur upp-
lýstir nú um réttindi sín, segir Sam-
göngustofa. Langflest erindin varða
seinkanir á vélum WOW air.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu hafa Samgöngustofu borist
895 kvartanir vegna flugfélaga það
sem af er ári en þar af eru 582 vegna
WOW air.
Fréttablaðið óskaði eftir sundur-
liðuðum fjölda erinda sem borist
hafa Samgöngustofu til meðferðar
það sem af er ári vegna flugfélaga en
ef flugfélög hafna kröfu farþega um
bætur eða endurgreiðslu getur Sam-
göngustofa hjálpað með úrlausn
mála. Ástæður kvartana geta verið
vegna þess að flugi hefur verið
aflýst, seinkun hefur orðið á flugi,
farþega neitað um far eða tjón hafi
orðið á farangri.
Samgöngustofa segir misjafnt
hversu margir einstaklingar eru á
bak við hvert erindi og að ferli mála
ljúki með mismunandi hætti. Hluti
þeirra endar með ákvörðun Sam-
göngustofu þar sem flugfélögum
getur verið gert að greiða kvartanda
bætur en í mörgum tilfellum næst
sátt milli farþega og flugrekanda.
Þórhildur Elín Elínardóttir, sam-
skiptastjóri Samgöngustofu, segir
flugfarþega í auknum mæli leita
réttar síns.
WOW Air, flugféiag Skúla Mogensen, stendur upp úr þegar tölur yfir kvartanir
til Samgöngustofu eru skoðaðar. fréttablaðið/anton
^ Kvartanir til Samgöngustofu
Flugfélag Fjöldi Aflýsing Seinkun Neitun Farangur Annað
Wow Air 582 58 475 30 12 7
Vueling 64 25 37 2
lcelandair 61 12 46 1 2
Norwegian 50 9 41
Primera 39 38 1
Wizz Air 29 10 17 1 1
AirlcelandConnect 18 10 8
Air Berlin 13 13
Easyjet 9 1 8
Önnurfélög 30 8 20 2
Samtals 895 146 690 34 16 9
„Mjög mikil aukning hefur orðið
á fjölda erinda af þessum toga sem
berast stofunni. Þannig má segja
að árið 2016 hafi erindi hingað tvö-
faldast frá því sem áður var og nú
á þessu ári hefur einnig orðið tvö-
földun kvartana flugfarþega frá því
sem var2016.“
Þórhildur segir skýringarnar helst
aukna neytendavitund almennings
og vöxt í flugsamgöngum.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW, segir að um 70%
erindanna séu tilkomin vegna þess
að félagið hefur ekki svarað.
„Sem er augljóslega ekki ásætt-
anlegt en skýrist af þeirri miklu
stældcun sem WOW air hefur farið
í gegnum undanfarin ár.“ Bendir
Svanhvít á að farþegafjöldi hafi
vaxið um 296% frá 2015-2017.
„Því miður hefur þessi mikli
vöxtur orðið til þess að við höfum
ekki náð að svara öllum sem skyldi
á réttum tíma og geta svarað far-
þegum hvort um bótaskylt atvik er
að ræða.“
WOW hafi fjárfest mikið síðustu
mánuði til að geta þjónustað við-
skiptavini betur og að gengið hafi
verið frá nær öllum þessara 70%
erinda er varða svarleysi.
Hins vegar hafl stór hluti komið til
af óviðráðanlegum aðstæðum. Nefn-
ir hún sem dæmi óveður og árekstur
kerru Icelandair Ground Service við
breiðþotu WOW í apríl.
„Kvartanir berast frá farþegum en
WOW air er ekki bótaskylt í öllum
tilfellum." mikael@frettabladid.is
HVERNIG A REYKJAVIK
AÐ VERA?
Áhugaverð og aðgengileg bók um
borgir og borgarskipulag eftir Hjálmar
Sveinsson og Hrund Skarphéðinsdóttur.