Fréttablaðið - 28.10.2017, Síða 6

Fréttablaðið - 28.10.2017, Síða 6
6 FRÉTTIR ■ FRÉTTABLAÐIÐ 28. OKTÓBER 2017 LAUCARDAGUR Við komum þér á kjörstoð 540 4300 m MENNTAMÁLASTOFNUN Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2018 Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2018 verður dagana 1.-30. nóvember nk. Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir framhaldsskólar auglýsa. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið innritun@mms.is Starfsfólk Menntamálastofnunar Víkurhvarfi 3 • 203 Kópavogi postur@mms.is • www.mms.is • (+354) 514 7500 Lögreglan hefur haft afskipti af parinu sem herjað hefur á íbúa Laugarneshverfis. íbúar eru hvattir til að læsa hurðum og hafa augun opin fyrir grunsamlegum mannaferðum. Myndin tengist efni fréttar ekki. fréttabladið/ernir Heimilislausir þjófar herja á Laugameshverfi Utangaröspar er í sigti lögreglunnar vegna raöar innbrota og þjóínaöarmála í Laugarneshverfí undanfarna viku. Bíl hefur veriö stoliö, brotist inn í bíla, heimili og bílskúra. Lögreglan vonast til aö geta komiö parinu í síbrotagæslu. lögreclumál Ungt heimilislaust par er grunað um röð innbrota og þjófnaðarmála í Laugarneshverfi í Reykjavík í vikunni og hafa margir íbúar í hverfinu verulegar áhyggjur. Lögreglan hefur haft ítrekuð afskipti af parinu og bíður þess að það brjóti af sér aftur svo skilyrði síbrotagæslu verði uppfyllt. Þangað til þurfa íbúar að hafa augun opin og dyrnar Iæstar. „Það erbylgja í innbrotum þarna og okkur grunar að megnið af þeim tengist þeim,“ segir fóhann Karl Þór- isson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann segir lögregluna fylgjast náið með gangi mála. „Við erum með þau í gjörgæslu. Þau þurfa að fá ákveðið mörg brot á sig til að hægt sé að setja þau í síbrotagæslu og við erum að vinna í þessu. Vonandi náum við innan tíðar að klára þetta.“ Noldcur umræða hefur skapast um innbrotafaraldurinn í Facebook- Þau þurfa aö fá ákveðið mörg brot á sig til að hægt sé að setja þau í síbrotagæslu og við erurn aó vinna i þessu. Jóhann Karl Þóris- son, aðstoðaryfir- lögregluþjónn hópi íbúa í hverfinu þar sem þol- endur þjófaparsins greina frá raun- um sínum. Þar gefur að líta frásagnir af stolnum bíl, innbrotum í bíla, innbrotum í bílskúra og heimili þar sem verðmætum er stolið. Jóhann Karl segir að brotist hafi verið inn í fyrirtæki sðmuleiðis. Greina má áhyggjur og ótta meðal margra íbúa sem þar taka til máls en líka samúð með ógæfu og aðstæðum parsins sem þurfi fyrst og fremst á úrræðum og aðstoð að halda. Jóhann Karl staðfestir að hið unga par sé heimilislaust og glími við geðræn vandkvæði. Hann segir mál sem þessi taka tíma og til að koma þeim í síbrota- gæslu þurfi einstaklingar að brjóta nokkrum sinnum af sér. „Við getum tekið þau úr umferð einn dag til yfirheyrslu en síðan fara þau út og koma aftur inn. Síbrota- gæsla er úrræði til að geta látið fólk, sem getur ekld gengið laust vegna þess að það er alltaf að brjóta af sér, sitja inni þar til dómar falla í mál- inu.“ Það eina sem íbúar hverfisins geti í raun gert sé að gæta þess að læsa að sér og hafa augun opin íyrir grun- samlegum mannaferðum. mikael@frettabladid.is Trúnaöur yfír annarri sáttargreiöslu RÚV FJÖLMIÐLAR Sú ákvörðun Ríkisút- varpsins að greiða Guðmundi Spartakusi Ómarssyni 2,5 milljónir í miskabætur til að ljúka meiðyrða- máli utan dómstóla í síðasta mán- uði er ekki einsdæmi í seinni tíð. Árið 2008 greiddi Ríkisútvarpið útgerðarfélagi á Súðavík bætur vegna fréttar af yfirvofandi gjald- þroti fyrirtækisins sem reyndist röng. Ríkisútvarpið segir trúnað ríkja um efni sáttarinnar og mun eltki upplýsa hversu há sáttar- greiðslan var að svo stöddu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins barst Ríkisútvarpinu kröfu- bréf frá lögmanni útgerðarfyrir- tækisins FiskAri á Súðavílc vegna fréttaflutnings svæðisútvarps Vest- fjarða af meintu yfirvofandi gjald- þroti íyrirtældsins vorið 2008. Aldr- 11 Páll Magnússon var útvarpsstjóri þegar RÚV greiddí útgerðarfélagi bætur vegna fréttar. ei lcom til stefnu í því máli líkt og í tilfelli Guðmundar Spartakusar, en samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins féllst RÚV á að greiða eig- anda fyrirtækisins bætur gegn því að málið yrði látið niður falla. Fréttablaðið óskaði i upphafi mánaðarins eftir upplýsingum frá RÚV um hversu há sáttargreiðslan var en fékk þau svör frá Margréti Magnúsdóttur, skrifstofustjóra RÚV, í vikunni að þar sem lcveöið hafi verið á um trúnað í sáttinni við FiskAra, telji stofnunin rétt að bíða niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál varðandi erindi fjöl- miðla sem óskað hafa eftir afriti af sátt RÚV við Guðmund Spartakus. Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og núverandi þing- maður Sjálfstæðisflokksins, gagn- rýndi RÚV á Facebook í síðasta mánuði fyrir að fallast á að greiða Guðmundi miskabætur í stað þess að láta á málið reyna fyrir dóm- stólum. Spurði hann hvort RÚV væri að borga peninga til að þurfa ekld að biðjast afsökunar og hvort verið væri að kaupa sig frá því að leiðrétta frétt. Páll var útvarpsstjóri þegar Ríkis- útvarpið gerði sátt í máli vestfirska útgerðarfélagsins árið 2008. -smj

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.