Fréttablaðið - 28.10.2017, Side 32

Fréttablaðið - 28.10.2017, Side 32
32 HELGIN • FRÉTTABLAÐIÐ 28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR LAUGARDAGUR 2S. OKTÓBER 2017 Kosningabaráttan hefur verið eftir- minnileg fyrir marg- ar sakir. Álitsgjafar Fréttablaðsins rýna í baráttuna bæði í gamni og af alvöru. Draumurinn er að enginn fari að kjósa Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri „Þessar kosningar eru algjört grín fyrir mér,“ segir Kolfínna Nikulás- dóttir leikstjóri. „Til aö byrja meö var þetta svolítið fyndiö, tragíkóm- ískt. En svo varð þetta bara tragískt. Aöallega af því þetta er svo mikið bull. Eiginlega er þetta ffekar leiðin- leg sápuópera. Af því að sápuópera byggir á ákveðinni formúlu. Hún er fyrirsjáanleg og langdregin, gengur út á sömu brandarana og drama- tíkina. Börnin þín eru barnabörnin mín! Eða eitthvað álíka. Þetta er svo fríkuð hegðun. Við erum alltaf að endurtaka hana og það er svo mikil geðveiki því útkoman er alltaf sú sama,“ segir Kolfinna sem frum- sýndi í gær verkið Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson með leikhópnum Frúardegi í MR ásamt Steineyju Skúladóttur. 99 EIGINLEGA ER ÞETTA FREKAR LEIÐINLEG SÁPU ÖPERA. AF ÞVÍ AÐ SÁPU ÓPERA BYGGIR Á ÁKVEÐ INNIFORMÚLU. HÚN ER FYRIRSJÁANLEG. í verkinu er dregin fram ýkt útgáfa af hegðun mannsins. Kolfmnu er verkið ofarlega í huga þegar hún fylgist með kosningabaráttunni. Kolfinna segir lýðræði á íslandi blekkingu. „Já, blekking, því að við erum ekki upplýst. Ég held að það væri betra fyrir okkur að hafa hér menntað einræði heldur en þetta sem ég myndi kalla auglýs- ingalýðræði. Við erum ekki hæf til að ráða okkur sjálf. Við erum bara vitleysingar. Lýðræðið er lygi, það er ekki satt að allir geti verið hvað sem er. Það geta ekki allir verið listamenn. Það geta ekki allir verið bankamenn. Það geta ekki allir verið gördjöss. Þetta er bara skrýt- inn hugsunarháttur. Ég vil eitthvað annað. Draumurinn minn er að enginn fari að kjósa. Það verði ekk- ert einasta atkvæði í kjörkassanum. Fyrir utan atkvæði frambjóðenda að kjósa sig sjálfa. Engin önnur." Enginn ráðherra í götunni lengur Andri Freyr Viðarsson fjölmiðlamaður „Ég er orðinn hundleiður á kosn- ingatali. Ég vinn í útvarpi og það er bara ekki hægt aö bjóða upp á þetta blaður endalaust," segir Andri Freyr Viðarsson, fjölmiðlamaður á RÚV. Hann viðurkennir þó að sér hafí þótt spennandi endurkoma Sig- mundar Davíðs í stjórnmálin. „Eg er sko enginn sérstakur aðdáandi Sigmundar Davíðs. Eða Katrínar. Eða einhvers annars. En ég verð að viðurkenna að þegar hann mætti á skjáinn þá opnaði ég mér bjór og sagði við konuna mína hvað ég hefði saknað hans. Hann er geggj- aður og hefur engu gleymt." Hann er ekki hrifinn af heim- sóknum Vinstri grænna heim til fóllts. „Mér finnst þetta agalegt. Ég bý í hverfi þar sem þau hótuðu að koma í heimsókn. Ég var heima hjá mér eins og krakkfíkill með paranoju. Fór út með ruslið og leit í kringum mig eftir þeim. Ég meina, hvað á ég að gera? Ég bý í lítilli íbúð. 99 ÉGVARHEIMA HJÁMÉR EINS OG KRAKKFÍKILL MEÐ PARANOJU, FÓR ÚT MEÐ RUSLIÐ OG LEIT í KRINGUM MIG EFTIR ÞEIM. Á ég að bjóða fjórum fullorðnum inn til mín. Það eru bara fjórir stól- ar í eldhúsinu og við fjöllan erum fjögur, sorrí VG. Ég hafði líka mjög miklar áhyggjur af því að eiga ekki veitingar og svona," segir Andri Freyr. Þá berst talið að aug- lýsingaherferð Sjálf- stæðisflokksins þar sem gengið var i haustlitunum í fallegri nátt- úru. „Ég veit að þau fóru ekkert í göngutúr. Þeim var bara keyrt á Benz-bifreið, svo gengu þau tíu metra til og frá. Ég hef unnið í sjónvarpi og veit hvern ig þetta virkar. Ég hefði tekið miklu meira mark á þeim ef auglýs- ingarnar hefðu verið teknar í ekta íslensku skítaveðri í Skútuvogi. Sigurður Ingi var líka að ferðast í auglýsingu fyrir Framsóknarflokk- inn. En heiðarlega, á bíl. „Hann er maður sem ég vil kynnast betur. Ég held að hann sé geggjaður í veislum. En þótt hann hafí verið með belti, er þetta ekki svolítil áhættuhegðun? Að taka upp aug- lýsingu og keyra? Það er eitt að tala í símann og keyra og eitthvað allt annað að stara í myndavél, tala og keyra. Þetta er maður sem teflir á tæpasta vað!“ Um tónlistar- myndband Sam- fylkingar þar sem Dr. Gunni syngur texta Hall- gríms Helgasonar við lag Bigga veiru segist Andri halda að það trekki fáa unga kjósendur að. „Ég held að ungu fólki sé alveg jafn mikið sama um kosningar og Hall- grím og Dr. Gunna. Ef þetta væri Sturla Atlas eða Aron Caan, já, þá kannski myndu þau hlusta. Ungu kjósendurnir líta eflaust hver á annan og segja: Er þetta ekki kall- inn sem gerði Prumpulagið þegar við vorum lítil? Með fullri virðingu fyrir þessum toppmönnum þá eru jafn margir að fara að kjósa út af þessu myndbandi og fara á tón- leika Ghostigital á Gauknum. Þetta er ekki allra og myndbandið gerir mig hræddan og stressaðan." Ein uppákoma í kosningabarátt- unni segir Andri Freyr að komi niöur á nágrenni sínu. „Já, mesti skellurinn við formannsskipti Við- reisnar er að nú verður enginn ráð- herra í götunni minni." Andri Freyr vill frekar sitja með meðlimum Bjartrar framtíðar á bar en að fylgjast með þeim á þingi. „Þau eru frábær og skemmtileg, ég held það sé geggjað að sitja með þeim á bar. Ég vil lílca aftur geta hlustað á HAM og farið á HAM tónleika án þess að vera að hugsa: þetta er alþingismaður að head- banga og garga." En hvað með lcveikjuna að þess- um kosningum? „Ég er því miður hræddur um að það sé talað jafn- mikið um uppreist æru og myglu i húsum í þessari kosningabaráttu. Við erum alltaf allt of fljót að gleyma. En það segi ég vitandi eklci neitt um pólitík." Mögnuð leiðindi Logi Bergmann fjölmiðlamaður „Mér fínnst kosningabaráttan hafa einkennst af mögnuðum leiðind- um,“ segir Logi Bergmann fjölmiðla- maður. Eiginkona hans, Svanhildur Hólm Valsdóttir, starfar sem aðstoð- arkona Bjarna Benediktssonar, for- manns Sjálfstæðisflokksins. „Það sem er merkilegt er að það eru örfáir sem láta svona, það er ákveðið fólk sem virðist hafa endalausan tíma til að hjóla í fólk með ófor- skömmuðum hætti. Þetta er voða mikið umburðarlynt fólk. En það er greinilega kvóti á umburðarlyndinu." Logi sér þó nokkra jákvæða punkta í kosningabarátt- unni. „Ég get nefnt aug- lýsingu frá Fram- sókn. Framsókn fyrir unga fólkið. Willum Þór tekst að sjarma með aulahúmor og talar til Fram: Frammarar, viljið þið eltki fara í sókn? Mér finnst þessi gleði og aulahúmor skemmtilegur," segir hann. „Ég hef þá kenningu að þú getir eltki náð árangri í pólitík nema að vera skemmtilegur. Þú verður að hafa áhuga á fóllti og mannlífi. En að vera stjórnmálamaður í dag, það er örugglega erfítt að sitja undir þessum leiðindum." Logi segist myndu taka vel á móti Vinstri grænum vildu þau ltoma í heimsókn til hans. „Mér fínnst það mjög fyndið. Þau ltomu víst til mín en ég var eklti heima. Ég þeltlti reyndar eltlti aðra sem hafa fengið þau í heimsókn. Kannski talta þau bara mynd af sér á einhverju götu- horni og setja á Faceboolt. En ég myndi sko taka vel á móti þeim.“ Hann segir kosningabaráttu Sjálfstæðis- floltltsins hafa verið erfíða en hefðbundna. „Já, þetta er búin að vera erfíð barátta en hefðbundin. Sltýr sldla- boð og auglýsingaherferðin áferðar- falleg. Gengið um í fallegum haust- litum. Maður sér lílta óvenjumarga frambjóðendur. Það er jákvætt." Kökubakstur Bjarna Benedikts- sonar ergir suma. „Hann bakaði ltöku fyrir afmæli dóttur sinnar, sem á afmæli á sama tíma í ár og í fyrra, og svo í einhverj- um þætti. Hann hefur ekki bakað miltið í þessari kosningabaráttu. Honum fínnst bara gaman að balta! Annars verður sumt fóllt alveg ofsa- lega reitt yfir þessum ltökubakstri. Reiðin yfír ltöltunum er rosaleg. Kökurnar eru bara svakalegur trigger. Fólk fer í alls konar mynd- líltingar um samfélagið og er bara brjálað. Maðurinn er bara að balta," segir Logi. Það er grúppa á Faceboolt þar sem 50 þúsund manns birta myndir ef þeir færa vasa. Þannig að ég sltil eltlti æsinginn." Um formannsskipti Viðreisnar segir Logi: „Mér finnst þau svolítið týnd. Þetta lá samt í loftinu. Ein- hvern veginn fínnst mér eins og allir hafí vitað það nema Benediltt. En annars er stutt síðan það var kosið síðast, þau lögðu allt á borðið þá. Það er erfítt fyrir þau að gera annað en vera bara samkvæm sjálfum sér og vera ekltert að lofa einhverju nýju." Og Björt framtíð. Kulnun er orð sem kemur upp í huga Loga. „Þau eru bara búin á því. Það vill eng- inn vera nálægt þeim og smitast af vondu gengi þeirra. Kulnun í starfí, það er það sem mér dettur í hug. Kannski fólki hafi eftir allt saman eltki fundist tilefni til stjórnarslita?" Píratar hafa í kosningabaráttunni unnið með framtíðarsýn. Logi segir fáa áberandi í baráttunni. „Ég upplifi að það séu helst tveir sterkir einstaklingar sem eru áber- andi. Helgi Hrafn og Þórhildur Sunna. Þau eru áberandi. Það er reyndar það sama og allir gömlu flokltarnir gera og hefur gefist vel. Samfylkingin hefur verið á sigl- ingu. Fara úr nánast engu fylgi yfir í að verða einn af þeim stærstu. Trúði því einhver? Já, ég vissi alltaf að þau ltæmu aftur. Mér finnst það lúmskt sltemmtilegt með lýðræðisfloltlt eins og Samfylkingu að það var handvalið á listann. En listinn er vel heppnaður og það væri gaman að hafa til dæmis Guðmund Andra á þingi. Hann er skemmtilegur og ltemur vel fyrir sig orði.“ Samfylkingin gerði tónlistar- myndband sem hefur valdð milda eftirteltt. Textinn er eftir Hallgrím Helgason, lagið eftir Bigga veiru og Dr. Gunni syngur. Logi segir mynd- bandið nið. „Súpermálaefnalegt að láta banana dansa í ltringum ltúlt. Það er eltld bara Miðflokkurinn sem hefur verið að leika sér í Paint. Þetta vídeó er allt það versta við þessa kosningabaráttu. Níð, amatörismi og hallærisheit." Logi segir Miðfloltltinn slæm tíðindi fyrir Floklt fólltsins. „Mið- flokkurinn var mjög slæm tíðindi fyrir Floltlt fólltsins. Þú þarft eltki að vera geimvísindamaðúr til að átta þig á því. Lógóið er svo auð- vitað skrýtin redding. Það er varla hægt að búa til stjórnmálaflokk á noltltrum viltum. En það er tilvalið fyrir ungliðahreyfinguna að vera með svona My Little Pony útgáfu. Þetta verður nú atriði í skaupinu." Röng mynd dregin upp Anna Katrín Snorradóttir Anna Katrín Snorradóttir er sjötta konan sem lagði fram kæru á hendur Roberti Downey, áöur Róberti Árna Hreiðarssyni. Hún er ein þeirra kvenna sem eru að baki þeirri atburðarás sem felldi ríkisstjórnina. Dagblaðið Politiken stillti þolendum upp á forsíðu í gær í umfjöllun um það af hverju gengið er til kosninga á islandi í dag. Önnu Katrínu finnst kosningabar- áttan hafa einkennst af því að röng mynd sé dregin upp af því af hverju nú er gengið til kosninga. „Það er forðast að ræða það og gert lítið úr því. Umræðunni er beint eitt- hvert allt annað, það eru hins vegar nokkrir flokkar sem hafa tekið á alvöru málsins. Ég trúi Pírötum þegar þeir segja: í okkar framtíð hafa þol- endur rödd. Þeir eru trúverðugir og einnig Samfylking sem er með herferð gegn ofbeldi. Þá hefur Svandís Svav- arsdóttir hjá Vinstri grænu fram- boði spurt spurninga sem skipta máli. Þessir flokkar eru veigamestir í mínum huga hvað þetta varðar. Þá finnst mér Píratar fremstir í því að tala við fólkið í landinu. Þeir hafa hlustað á okkur, hafa átt alvöru samtal við okkur. Því það erum við, brotaþolar, sem höfum PQLITIKEM a Saa:* é fortal te om at være r &^»^«gtseksuelt, blevdet begyndelsen tll enden forden islandske legei-ing. I morgen gár Island til valg - igen i ÍL á a lá M iÉ ipsíi þekkinguna á því hvað það er sem þarf að laga. Þeir gripu baráttuna með oklcur. Börðust fyrir okkur þegar við hðfðum ekki rödd. Spurðu: Hvað vantar ykkur til að fá réttlæti? Svo gengu þeir beint í það. Er það ekki einmitt þetta sem við viljum að stjórnmál snúist um? Við erum öll þakklát þeirra vinnu. Það hefði tekið okkur mun lengri tima að ná fram svörum ef ekki hefði verið til dæmis fyrir Þórhildi Sunnu. Það er erfitt i íslenskum stjórn- málum að fá áheyrn. Við þol- endur höfum ekki fengið nein svör frá Sjálfstæðisflokknum. Þó að við höfum ávarpað þau beint í opnum póstum til þeirra á Facebook. Bjarna Benedikts- son, Sigríði Andersen, Brynjar Nielsson ogfleiri. En þau svöruðu okkur ekki. Þau svöruðu Bergi Þór þegar hann spurði. En ekki okkur. Það segir rnikið," segir Anna Katrín og segir svaraleysið vanvirðingu. „Þess utan hefur mér fundist bar- áttan á neikvæðum nótum. Einkenn- ast af rifrildi og leiðindum, þrætum um litla hluti þar sem er gert lítið úr andstæðingnum til að lyfta sér upp. Það eru allir komnir með nóg af þessu og ég hef sagt að ég sé með ofnæmi fyrir pólitík. Þá hef ég litið tekið eftir mörgum flokkum í framboði. Mér finnst þeir ekki tala til mín sem kjós- anda. Ég vil taka upplýsta ákvörðun en það er eins og þeir hafi ekki áhuga á samtali við stóran hóp kjósenda. Eg ber ofboðslega lítið traust til flestra stjórnmálaflokka. Nema Pírata, þeir hafa unnið sér mitt traust. Ég er ekk- ert feimin við að segja að ég muni kjósa þá. Það er vegna þessa viðmóts. Þau eru fólk eins og við, setja sig ekki ofar okkur og eru tilbúin að hlusta og vinna fyrir okkur." HELGIN ■ FRÉTTABLAÐIÐ 33 Rödd freku kallanna lækkar Lára Guðrún Jóhönnudóttir Láru Guðrúnu Jóhönnudóttur sem steig fram i sumar og lýsti baráttu sinni við heilbrigðiskerfið eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein hefur fundist kosningabaráttan ein- kennast af örvæntingu og óðagoti. „Sem er svo sem ekkert óeðlilegt miðað við hversu óvæntur aðdragandi kosninganna var,“ segir Lára og nefnir það sem henni fínnst best áberandi. „Hversu hratt rödd „freku kallanna" fer lækkandi og hversu hratt okkur er að takast aö koma í veg fyrir frekari þöggunartilburði þeirra. Hins vegar eru ennþá nokkrir gamlir „refir" sem eru svo uppteknir að svara fýrir eigin skít og skandala að þeir eiga í raun ekk- ert erindi í nútíma- stjórnmál, við höfum hvorki pláss né tíma fyrir eiginhagsmunaseggi sem kunna ekki að setja sig í spor annarra," segir Lára. „Það vantar meiri náungakærleik og meiri vilja til samvinnu." Hún er hrifnust af herferð Pírata. „Þeir hafa einblínt á samfélagsmiðla, opnafundi ogeru ekkert að spreða í einhverjar sjón- varpsauglýsingar sem birtast í línu- legri dagskrá. Þeirra herferð byggist á því að treysta unga fólkinu til að mæta á kjörstað og ég hef fulla trú á því að þeir sem eru nýkomnir með kosningarétt mæti og kjósi það sem er rétt fyrir þá. X-D herferðin er vandræðalega klaufaleg, fullt af einhverjum súlu- ritum með tölum sem gefa skakka mynd af raunveruleikanum, sem gefur einnig til kynna að þau haldi að kjós- endur séu meðfærilegir sauðir sem lumna ekki að rýna í eða nálgast rétta tölfræði sjálfír." Lára segist finna fyrir vilja til að gera betur í heilbrigðismálum. „Það er margt sem þarf að bæta, nýja greiðsluþátttökukerfið er svo sannar- lega engin töfralausn og ég held það sé engum frambjóðanda í hag að reyna að kaupa atkvæði á því að stæra sig afþví." Kynningarfundur ^ um Nordplus norrænu menntaáætlunina Kynningarfundur um Nordpius norrænu menntaáætlunina verður haldinn 1, nóvember í Veröid, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur hjá Háskóla íslands, kl. 15.30 - 17.30. Farið verður yfir Nordplus áætiunina og þær breytingar sem verða á nýrri áætlun fyrir árin 2018-2022. Nordplus veitir styrki tif-.aHra skólastiga og allir sem starfa við menntamál, innan formlegra menntastofnana eða utan þeirra, geta sótt um í Nordplus, m.a er hægt að sækja um bekkjarheimsóknir, kennaraskipti, norræn tungu- máiaverkefni og samstarfsverkefni á Norðuriöndum og Eystrasaltslöndum. Næsti umsóknárfrestur er 1. febrúar 2018. Sjá nánar á nordplus.is. Boðlð verður upp á iéttar veitingar og hægt vérður að fá persónulega ráðgjöf varðandí umsóknir. Vinsamlegast skráið ykkur á rannís.is Nordplus 3 rannís

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.