Fréttablaðið - 28.10.2017, Qupperneq 64
28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR
Bestu og furðulegustu
í gær var opnuð í Hönnunarsafni ísfands sýning á
íslenskum plötuumslögum og af því tilefni fannst
Fréttablaðinu nauðsynlegt að fá nokkra álitsgjafa til
að segja frá uppáhaldsplötuumslagi sínu. Áiitsgjaf-
arnir völdu einnig það plötuumslag sem þeim fannst
skrítnast, skemmtilegast og líka það furðulegasta.
ARNAREGGERTTHORODDSEN
poppfræðingur
Flottast
múm- Loksins erum við engin / Finally We Are No One
Liturinn, hönnunin, áferðin og allt i kringum þessa
plötu er bara dásamlegt. Kallarfram nostalgískar til-
finningar í manni. Tíu tommu vínylútgáfan undirstrikar
þetta allt saman betur.
Furðulegast
Haraldur Guðni Bragason - Askur
Haraidur þessi gaf plötuna út
sjálfur. Af nógu er að taka í hinum
svonefnda hamfarapoppsgeira en
þetta umslag er með þeim allra
„bestu“. Það er nánast ekki hægt að
koma þvi i orð, hvað fer um mann
þegar maður sér þetta.
f
PÓlf FÓNÍA
^ÞURA STÍNA
hönnuður og plötusnúður
irrAiAT oisa« oitAinr
Flottast
-vg.Apparat Organ Quartet- Pölýfónía
Furðulegast
Tvlhöfði - Allt
Þetta umslag eftir Sigga Eggerts er svo vel gert,
kannski aðallega því þér finnst umslagið standa fyrir
það sem þú ert að hlusta á.
Þetta er auðvitað bara alveg
grilluð pæling og plötukoverin i
samræmi við það, mjög kómisk og
skrýtin en samt svo geggjuð.
KJARTAN GUÐMUNDSSON
upplýsingafulltrúi
Flottast
Utangarðsmenn - Ceislavirkir (1980)
Vafalaust á nostalgían sinn þátt í því að mérfinnst
þetta umslag bera höfuð og herðar yfir önnur islensk.
Kjarnorkuváin svífur yfir vötnum og rimar þannig full-
komlega við plötutitilinn, umfjöllunarefni textanna
ogtiðarandann í upphafi niunda áratugarins þegar
stóra sprengjan gat sprungið á hverri stundu. Flott,
spennandi og afar vel heppnað, og rúsínan i pylsu-
endanum er svo þessi ógnandi Shatter-fontur i nafni
hljómsveitarinnar. Fullkomið.
Furðulegast
Ólafur Arnalds - For Now I Am
Winter (2013)
Titillinn á plötunni gefur tóninn
fyrir ævintýralega tilgerðarlegt og
þreytt umslag hjá ungum manni
á uppleið. Cæti auðveldlega verið
gullverðlaunahafi í heimsmeist-
arakeppninni í klisjum, þar sem
listamaðurinn horfist I augu við
tilgangsleysi allra hluta á meðan
sjávargangurinn ogbrimrótið
ólgar innra með honum. Cæti þó
eflaust virkað sem framúrstefnu-
legauglýsingfyrir lundabúð í
Smáralind.
MAGNÚS LEIFSSON
leikstjóri
Sí3í2®S@ 41 *
AwmsmwSsm^sm
Flottast
Megas & Spilverk þjóðanna
-Á bleikum náttkjólum
Égkemst alltaf að þeirri niðurstöðu að þetta sé besta
plötuumslagið. Fríkað ogfallegt á sama tíma.
Furðulegast
Diddi Fel-Hesthúsið
Égelska þetta plötuumslag. Ótrú-
lega góður bældleiki ogskemmtileg
tilvisun í Snoop Dogg- Doggystyle
umslagið. stcfanthoríSifrettabladid.is
ANNAÐ SEM VAR NEFNT:
Sin Fang- Spaceland (og öll hans umslög reyndar)
Ótrúlega flott, töff ogstíliserað og það hefur verið
þráður i gegnum öll umslögin, sem eru listavel hönnuð
af Ingibjörgu Birgisdóttir. Hönnun hennarfyrirSóley er
af sama kaliberi.
Helmus und Dalli - Drunk is faster
Um erað ræða verkefni sem Davið Þór Jónsson
(píanisti) og Helgi Svavar Helgason (trymbill) hrærðu i.
Algjört flipp ogsýra út í gegn en frábært stöff. Umsiagið
endurspeglar stemninguna, er dásamlega steikt og
furðulegt.