Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 16
WSBBi 1- maí — 30 ár:
„EF I»IÐ ERUD ALLIR SAMTAXA, GETA ÞEIR
ENGU FRAM KOMIÐ"
Á þessu ári minnist íslenzk alþýða
30 ára afmælis 1. maí á íslandi.
Árið 1923 réðust reykvískir verka-
menn og verkakonur í það að halda
þennan alþjóðlega baráttu- og hátíðis-
dag einnig hér á landi. Það þurfti
kjark til, því að atvinnurekendavaldið
og þáverandi „danski Moggi“, reyndu
með öllum ráðum að hræða verka-
menn frá þátttöku í deginum.
Eigi að síður fóru hundruð reyk-
vískra alþýðumanna út á götuna í
kröfugöngu undir fánum og merkjum.
Þessi fyrsta ganga varð áhrifamikil og
markaði tímamót í baráttu íslenzka
verkalýðsins. Hún, örfaði til allra
þeirra sigra, sem íslenzk verkalýðs-
hreyfing hefur unnið á síðastliðnum
30 árum.
En „danski Moggi“, blað erlendra
og innlendra kúgara ærðist. í 1. maí-
blaði kröfugöngunnar 1924 segir m.a.:
„Eins og margir muna, sagði
Moggi það í fyrra, daginn eftir
kröfugönguna, að í kröfugöngunni
hefðu verið nokkur börn!! og
kannske svona 50 fullorðnir!!
Seinna urðu það 500. En nú á sum-
dardaginn fyrsta segir danski
Moggi, að það hafi verið Héðinn og
nokkur börn!!“
„Nú leggur danska dulan allt
kapp á að hindra það, að verka-
fólk taki þátt í kröfugöngunni í
/ dag. En verkalýðurinn veit, hvern-
ig á að svara slíku. Því verður
svarað með því að mæta vel. Eng-
inn, karl eða kona, sem tilheyra
verkalýðsstéttinni, má sitja heima.
Enginn má hugsa sem svo, að ekki
muni um sig einan .... Mundi
kaupdeilan síðasta hafa fengið svo
skjótan enda, ef ekki hefðu allir
verkamenn staðið sem einn mað-
ur?“
„Hræðist ekki, þó þeir, sem
kaupa vinnu ykkar, hóti ykkur
hörðu ef þið vinnið ekki, því ef þið
eruð allir samtaka geta þeir engu
fram komið.“
Blaðið endar á grein eftir Felix
heitinn Guðmundsson, þar sem hann
segir svo:
„íslenzk alþýða hlýtur að fara
að vakna til meðvitundar um rétt
sinn og mátt. Enskir jafnaðarmenn
fara þar nú með stjórn í landi og
nú eru danskir jafnaðarmenn líka
við stjórn þar í landi, og í Rúss-
landi hefur alþýðan ráðið síðustu 6
árin. í dag gengur stjórn Bretlands
í broddi fylkingar í kröfugöngu
verkalýðsins. f dag gerir ríkisstjórn
Dana hið sama. í Rússlandi er lög-
skipaður frídagur. Hvenær getum
við fagnað sama sigri. Því fyr þess
betra. Við færumst alltaf nær og
14
VINNAN og verkalýðurinn