Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 20
suíinudagur, svo að við fórum seint á
fætur og lásum fram eftir morgnin-
um........
Fulltrúinn: Nú, hvað lásuð þið?
James: Ég kom heim með stóran
bókabunka í gær, hverja söguna ann-
arri betri. T. d. „Heimspeki brjálæðis-
ins“, „Líkið með samlímdu fingurna“,
„Ástarsöngur morðingjans", „Deyið
ekki á þröskuldi mínum, frú“ ....
Bessie (heldur áfram upptalning-
unni): „Dauði gegn afborgunum", „Til
hamingju með líkið“, „Morð umfram
allt“, „Berið líkkistuna mína varlega“.
Hvað var það nú fleira? Já, „Morð í
kjól og hvítu“, „Líkklæðin hennar
ömmu' ....
Fulltrúinn: Og hvað var það sem
þið lásuð?
Bessie (áköf): Ég las söguna „Blóðið
mun segja frá“ eftir Agöthu Cristie.
Það er afbragðssaga: Leynilögreglu-
maðurinn Poirot er að reyna að upp-
lýsa hryllilegt morð, sem annar mað-
ur hefur þegar verið dæmdur til heng-
ingar fyrir. Hann hefur ekkert til að
styðjast við, en svo rekst hann á úr-
klippu úr blaði þar sem talað er um
þrjár horfnar konur. Nú verður hon-
um Ijóst hver er morðinginn. Hann
fer heim til hennar en kemur að henni
myrtri og ____
Fulltrúinn: Þetta nægir. (Við Jam-
es): Hvað lásuð þér?
James: Ég las „Þrefalt dirfsku-
bragð“, eftir Rex Stout. Það er stór-
fengleg bók. Þar segir frá leynilög-
reglumanninum Nero Wolfe. Brún-
hærð stúlka heldur því fram að hún
hafi myrt lögregluþjón. Og nú er
spurningin: lýgur hún þessu, er hún
vitlaus eða segir hún sannleikann?
Það ríður á að komast sem allra fyrst
að hinu sanna áður en fleiri morð
verða framan, eins og þér skiljið, hr.
fulltrúi. Djöfuls ári spennandi bók.
Bessie: Ekki líkaði mér hún.
James: Það er smekksatriði. Ég vil
hafa almennilega bókmenntir, en þú
ert vitlaus í myndasögur.
Bessie: Ég skoðaði myndabók í dag
sem heitir „Mannaveiðar“. Hana ætt-
uð þér endilega að sjá hr. fulltrúi. Þar
eru nú krassandi myndir. Beinagrind
sést vera að draga stúlku ofan í gröf-
ina til sín. Hlekkjuðum manni er
fleygt ofan í sýruker. Á einni mynd-
inni er geysistór hundur að rífa mann
á hol. Og á annari er hákarl að gleypa
mann. Hryllilega spennandi myndir.
Fulltrúinn: Þetta nægir. Sem sagt,
fyrripart dagsins hafið þið lesið skáld-
sögur og skoðað myndablöð.
James (grípur fram í): Já, en svo
voru líka sjónvarpsútsendingar í
morgun — „Rauða sönnunin" ....
Bessie: Mér þótti hin betri —
„Taugaáfallið“. Það var nú sjónvarp
í lagi. Það skulfu svo á mér hendum-
ar ....
James: Ég mátti til að gefa henni
glas af visky, hr. fulltrúi, annars held
ég hún hefði drepið mig (hlær).
Fulltrúinn: Hvað gerðuð þið svo:
Bessie: Svo fengum við okkur
18
VINNAN og verkalýðurinn