Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 23
TVEIR MIKLIR FORINGJAR FALLNIR
5. marz s.l. andaðist Jósef Stalín.
AS sjá í ljósi sovétmansins þennan
mikla leiðtoga er eigi fært án þess aS
getá gert sér nokkurn vegin rétta
mynd af Rússaveldi keisara og auð-
stéttar aíinars vegar og ríki sósíal-
ismans nú í dag hins vegar, greint hið
mikla djúp, sem nú er staðfest milli
gamla Rússlands áþjánarinnar, skorts-
ins og menningarleysisins annars veg-
ar og blómstrandi hagsældar og menn-
ingar í lýðfrjálsum löndum Sovét-
sambandsins hins vegar. — Sovétþjóð-
irnar hafa reynt þetta tvennt, og þær
vita að engum einum manni ,næst
Lenín, ber að þakka þessi miklu um-
skipti eins og Stalín.
Jósef Stalín er dáður og harmaður
af öflum framfara og friðar um allan
heim. Undir leiðsögn hans hefur
fræðikenningin um kreppulaust þjóð-
félagsskipulag ótæmandi hagnaðar-
möguleika fyrir mennina sannast í
framkvæmd. — Ekkert stórmenni sög-
unnar hefur borið gæfu til að sjá í
lifandi lífi svo ríkulega uppskeru
verka sinna sem Staiín, og vandséð
mun hvort enn hafi nokkurt stór-
menni veraldarsögunnar, að Lenín
undanskyldum, reist sér í verkum
sínum svo glæstan og óbrotgjarnan
minnisvarða sem hann.
Þegar þess er gætt hvern hlut Sov-
étríkin undir forystu Stalíns áttu að
frelsun Tékkóslóvakíu úr klóm fas-
ismans 1945 má með sanni segja, að
með andláti Klements Gottvalds for-
seta Tékkóslóvakíu hafi ekki orðið
Eins og kunnugt er hóf Stalín korn-
ungur baráttu sína fyrir málstað ör-
eiganna við ósegjanlega örðugleika á
dögum rússnesku keisarastjórnarinn-
ar. Hann var margsinnis dæmdur og
sendur til Síberíu fyrir byltingarstarf
sitt gegn rússnesku harðstjórnarvaldi,
en lét aldrei bugast. (Myndin er af
Stalín í æsku.)
ein báran stök fyrir hinu unga al-
þýðuríki í Mið-Evrópu.
Vér vitum að í herbúðum kapítal-
ista og nýfasista er nú grátið þurrum
tárum yfir fráfalli þessara tveggja
þjóðaleiðtoga sósíalismans, og að við
þennan mikla mannskaða í röðum al-
VINNAN og verkalýðurinn
21