Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Qupperneq 25
ÁRNI GUÐMUNDSSON:
r
\
Sfalínverksmiðjurnar í
1. maí og 7. nóv. eru mestu
hátíðir Sovétþjóðanna. Þá eru
borgir skreyttar og mannfjöldi
streymir um götur undir
merkjum dagsins. Húsið á
myndinni mun vera stóra leik-
húsið í Moskvu, 1. maí, skreytt
myndum af Marx, Engels,
Á ferð okkar s.l. vor um Ráðstjórnarríkin voru okkur sýndar hinar miklu
Stalínverksmiðjur í Moskvu, sem framleiða bifreiðar af ýmsum stseiðum og
gerðum, bæði fólks- og vörubíla, einnig reiðhjól og kæliskápa.
Þarna vinnur fólk í þúsundum bæði konur og karlar, en i Ráðstjórnarrikj-
unum vinnur fólk af báðum kynjum að öllum störfum i hvaða iðnaði sem er.
Áður en okkur voru sýndar verksmiðjurnar var okkur sögð saga þeirra
í stórum dráttum, en það er of löng saga að segja hana hér.
Við fórum um deild, sem framleiðir fjögurra tonna vörubíla. Byrjuðum
við þar sem glóandi járnleðjunni var helt í mótin og mótorblokkirnar eru
steyptar. Við sáum, þar sem hvítglóandi járnstykki voru lögð á slétta járn-
fleti eða risasteðja, og fallhamrar voru látnir detta einu sinni eða tvisvar á
þau, og hinir ýmsu bílahlutir bæði stórir'og smáir voru fullmótaðir, og runnu
nú á færiböndum að skiptivélum, sem fullunnu þá.
Var okkur rækilega sýnt það, og skýrt fyrir okkur hvernig vinnan er sam-
ræmd, og allir hlutir ganga eftir færiböndum frá einni vél til annarrar. Var
einn maður við hverja vél til að líta eftir og stjórna henni. Var gaman
að sjá stóra vélahluti svo sem mótorblokkir, sem fóru hver á eftir annarri, eins
og ólögulegir járnklumpar inn í röð af tröllslegum vélum, sem hver vann sitt
ákveðna verk, unz þær komu fullgerðar út úr þeirri síðustu. Þannig héldu þær
áfram för sinni, frá einum til annars, sem allir með aðstoð véla lögðu sitt
til að gera þær að fullgerðum vélum.
VINNAN og verkalýðurinn 23
/