Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Blaðsíða 27

Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Blaðsíða 27
Þetta er talinn sérstaklega góður langferðabíll, óg yfirleitt þarf ekki að gera neitt við hann fyrstu 100.000 km., eftir því sem mér var sagt. Menningarstarfsemin er fjölþætt: í sambandi við verksmiðjurnar er heilsu- verndarstöð, en þar starfa 65 læknar og sérfræðingar, og getur því starfs- fólkið ávalt leitað færustu lækna Moskvuborgar þegar það þarf, sér að kostnaðarlausu. Fólki er nákvæmlega sagt hvernig það á að standa við hinar ýmsu vélar þar sem það vinnur, svo að sem hollast sé fyrir líkamann. Starfsfólk í Stalínverksmiðjunum leggur afar mikla áherzlu á alla líkams- rækt og íþróttir, þar eru 50 knattspyrnulið, þar á meðal hið fræga „Torpedólið" sem nú í ár hefur orðið sovétmeistarar í knattspymuíþróttinni. í sundknatt- leik eru þeir meistarar sovétríkjanna. Þar starfar einnig Miskof sem er sovétmethafi í 200 og 400 m. sundi. Menningarheimili þeirra er stórkostlegt bæði að stærð og fjölbreytni og öllum útbúnaði. Þegar komið er innfyrir dyrnar er komið inn í feikilega stóran sal, þar tekur fólk af sér utanyfirföt, eru þar 4416 fatahengi, taka þau aðeins lítinn hluta þessa stóra sals. Þar innaf tekur við annar salur litlu minni, upp- hækkaður með hringmynduðum útvegg, sem er einn samfelldur gluggi. Hann er skreyttur ótölulegum fjölda blóma, stórum og smáum, þar eru tveir gosbrunnar, sem gerir loftið svalt og hressandi, en stór höggmynd af Stalín fyrir miðju. í þessu menningarheimili eru 4 bókasöfn, í einu þeirra, sem er sérstaklega tileinkað verkalýðnum eru 47,000 bindi. Þessi söfn lána bækur til lesturs bæði í heimahúsum og í lesstofum sem eru bæði margar og stórar í heim- ilinu sjálfu. Þar liggja frammi töfl og margt annað, fólki til skemmtunar og dægradvalar í frítímum þess. Þar eru salir til hverskonar menningarstarfsemi sem fólk kann að hafa áhuga fyrir, svo sem hljómleikasalur með hljóðfærum af öllum mögulegum gerðum. Listvinasalur, þar æfir fólkið í alls konar myndhstargerð, með liti, gera myndir úr margskonar öðru efni, svo sem að líma marglit bréf á gler eða aðra slétta fleti, tréskurðarmyndir, höggmyndir o. m. fl. Þar er salur, þar sem fólk getur dundað vi4 í frítímum sínum, að smíða allskonar módel að hugmyndum sínum og uppfinningum, sem síðar kemur iðnaði og tækni Ráðstjórnarrkjanna ef til vill að gagni, og þokar þeim spöl áfram á braut þróunarinnar. Þarna er fyrirlistrasalur, leikfimisalur með margskonar íþrótta- tækjum, bíósalur og leiklistarsalur, þar sem fólk æfi sig í leiklistinni og svona mætti lengi telja. Þarna er fyrir hendi allt hugsanlegt til dægradvalar, skemmtunar og menn- ingarlegs þroska fyrir verkafólkið, sem vinnur þarna. Meira að segja uppi á þaki þessarar menningarhallar er gríðarstór stjörnukíkir fyrir þá, sem áhuga Framhald á blaðsíðu 45. VINNAN og vcrkalýðurinn 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.