Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Side 31
og skekur skip ræningjanna. Farið og
hjálpið hafinu að husla þetta ógeðslega
hræ. Einhver byrjaði að syngja al-
þjóðasönginn. Aðrir tóku undir. Sjó-
mennirnir fóru frá lóðum sínum. All-
ir bátarnir tóku stefnu á skipið. Þeir
sigldu fast fram með því hver á eft-
ir öðrum. Öldurnar af bátunum riðu
undir ræningjaskipið, lyftu því á bök-
um sér og köstuðu því niður í dali.
Það hrykti í súðunum. Líkin í lestinni
ýKruðu. Skipið sekkur! var hrópað ein
hvers staðar frá borði. Skipið sekk-
ur! Skipið sekkur! hljómaði um allan
sjó. Bátarnir héldu áfram að sigla
fram hjá í óendanlgri röð. Skipið
valt á stjórnborðshlið og byrjaði að
sogast í djúpið. Úr nösum ræningj-
anna vætlaði grátt blóð. Hafið þurrk-
aði það út með einni öldu. Nokkrar
lcftbólur stigu upp á yfirborðið. Allt
í einu skaut bjarthærðri stúlku úr
kafinu. Hún hristi blauta lokka frá
andlitinu og hrópaði: Hjálp! Ég hef
ekkert illt gert. Ræningjarnir neyddu
mig til að dansa fyrir sig. Þegar skipið
tók að sökkva, læstu þeir mig inni og
ætluðu að drekkja mér. En veggir
fangaklefans voru fúnir, og liðuðust
sundur á leið til botns. Björgum henni,
sagði ég, hún er saklaus. Fiskimennirn
ir tóku hana upp í bát sinn og veittu
henni beztu aðhlyningu. Síðan sást
ekkert af ræningjaskipinu. Hafið kúg-
aðist af ógleði um stund, áður en ylgj-
una lægði. Þegar kyrrð var komin á,
söknuðum við eins fiskibátsins. Við
fundu mlík félaga okkar í hvítum
breka. Við sveipuðum þá fánum og
fylgdum þeim til hvílu í íslenzkri
mold. Norðurljósin loga á gröfum
þeirra.
Guðgeir Jónsson
sextugur
25. apríl s. 1. varð Guðgeir Jónsson
bókbindari sextugur. Hann er löngu
kunnur alþýðu fyrir starf sitt í þágu
stéttarsamtaka verkalýðsins, var um
langt skeið í stjórn Alþýðusambands
íslands, forseti þess frá 1942—’44 og
síðan í sambandsstjórn frá 1946—:’48.
Guðgeir er svo sem kunnugt er for-
maður Bókbindarafélags Reykjavíkur
og hefur skipað þann sess á annan
áratug. Hann hefur jafnan staðið í
fremstu röð þegar vanda hefur að
höndum borið í stéttarfélagi hans,
enda af mörgum talinn eiga mestum
persónuvinsældum allra einstaklinga
að fagna þar. Vinnan og verkal. sendir
Guðgeiri sínar beztu kveðjur og árn-
aðaróskir í tilefni afmælisins.
VINNAN og verkalýðurinn
29