Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 37

Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 37
Tveimir tímar Að ofan: Verkamannabú- staðir gamla tímans í Kína. Að neðan: Verkamanna- bústaðir nútímans. svntu í stórum torfum, þeir komu í þéttum fylkingum þegar kastað var til þeirra æti. Nú var haldið yfir vatnið til að skoða hvíldarheimili járnbrautar- verkamanna. Hangchow er mikill ferðamannabær. Þangað koma þús- undir manna daglega og fjölmörg verklýðsfélög og félagasambönd eiga þar hvíldarheimili fyrir meðlimi sína. Var okkur sagt að í borginni dveldust að jafnaði um eitt hundrað þús. gestir. Bátur okkar legst að vatnsbakkan- um, og framundan okkur blasa við niargar byggingar, ekki háar í loft- inu, en afar skrautlegar, sumar að mestu huldar inni á milli stórvaxinna trjáa. Skuggsælir og skrautlegir garðar rneð tjörnum og skurðum voru á milli húsanna. Enginn umferðarhávaði barst til eyrna okkar. Ekkert truflaði þessa einstæðu fegurð, nema fugla- kliðurinn, þyturinn í trjálaufinu og öldugjálfrið við upphlaðna vatns- bakkana. Ibúar heimilisins, sem voru járn- brautarverkamenn hvaðanæva úr landinu, tóku á móti okkur eins og lengi þráðum vinum, eða týndum son- um, sem aftur höfðu snúið heim. Þarna fengum við fyrst lýsingu á heimilinu og síðan var okkur fylgt gegnum það og sýnd herbergjaskip- un og aðbúnaður vistmanna. Hvíldarheimili þetta var stofnað fyrir 2 árum í höll, sem áður tilheyrði ríkum aðalsmanni, hann komst úr landi með Kuomintangstjórninni, það er eitt af mörgum hressingarheimilum er járnbrautarverkamenn eiga víða um landið, þangað senda þeir félaga sína til hvíldar og hressingar eftir vel unnin störf.Það er í fyrsta skipti í sögu VINNAN og verkalýöurinn 35

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.