Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 38

Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 38
verkalýðsins, eftir að hin nýja stjórn tók við völdum, að hann varð þess aðnjótandi að fá að dveljast á hvíld- arheimilum. Þarna dvöldu nú nokkrir tugir verkamanna, þeir voru að safna kröftum undir nýja sókn í því mikla uppbyggingarstarfi, sem nú fer fram í Kína. Þeir sýndu okkur heimili sitt með nokkru stolti, enda höfðu þeir efni á því að vera stoltir af því. Þarna var þvílíkt skraut í öllum húsbúnaði, að það var líkara að maður væri kom- inn á listasaín en heimili. Húsgögn úr dýrustu viðartegundum haglega út- skorin i hinum ólíkustu stíltegundum fylltu alla sali,listaverk úr jaðe, postu- líni og fílabeini voru hvarvetna á borðum úr fegursta kínverskum mar- mara. Jafnvel heimilishofið með sín Buddalíkneski, forfeðratöflur, reyk- elsisker og haglega gerðan útskurð var þarna með ummerkjum. Einhver okkar hafði orð á því hvers vegna þessir dýru munir væru ekki á safni, hér myndi þeim vera hætt við að eyðileggjast. Stjórnandi heimilisins svaraði því til, að það yki þroska vistmannanna að umgangast þessa gömlu muni. Hérna komast verkam. í snertingu við það bezta, sem fram- leitt var af handverksmönnum horf- inna kynslóða og þeir læra að um- gangast þessa muni með virðingu og lotningu, því hafa þeir meira uppeld- isgildi, en þó þeir væru látnir á safn. Eftir að við höfðum skoðað heimilið var okkur boðið te og meðan við drukkuð það sögðu sumir af vistmönn- unum okkur sögu sína, en rúmið leyfir ekki að taka þær sögur upp hér, en hjá öllum var grunntónninn þessi: Við erum aðeins að byrja að byggja upp landið okkar, hrakið og merksog- ið eftir aldalanga kúgun innlends lénsaðals og útlendra arðræningja. Þrautpínt eftir áratuga innanlands- styrjaldir. Herjað af drepsóttum, þurrkum og flóðum á víxl, þar sem milljónir dóu árlega úr hungri. 'Við höfum friðað landið, nú hafa allir nóg að borða og föt til að klæðast í. Við stöndum nú í því merkilegasta upp- byggingarstarfi, sem nokkurntíma hefur komið yfir kínversku þjóðina. Á öllum sviðum þjóðlífsins þurfurn við að bæta úr aldagamalli vanrækslu. Við höfum ekki tíma til að heyja stríð. Það eru önnur störf mikið meir aðkall- andi, sem heimta starfsorku okkar ó- skipta. Þess vegna umfram allt; við viljum frið og berjumst fyrir friði. Berið kveðju frá kínverskum járn- brautarverkamönnum til íslenzkrar alþýðu, og það með, að engir eru svo fáir og vanmáttugir, að þeir geti ekki unnið fyrir friðinn og með sameiginlegu átaki allra friðelskandi manna, hvar sem þeir búa á jörðinni, skal okkur takast að vernda friðinn. Zophonías Jónsson. RÁÐSTEFNA um þjóðareiningu gegn her á íslandi verður haldin í Reykjavík dagana 5.—7. maí. Verkafólk. Veitið verkefni þessarar ráðstefnu athygli og allan þann stuðning sem verða má. AUir eitt gegn her í landi voru. — Burt með herinn. 36 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.