Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 42
Um verkalýðssamtök
Undirbúningur
Að sjálfsögðu ber hverri félagsstjórn að hafa sem bezt samráð við
félag sitt þ. e. sem flesta félagsmenn, þegar um er að ræða uppsögn
kjarasamninga.
Það fyrsta sem hún verður að ganga úr skugga um er það hvnrt
félagsmenn séu því meðmæltir eða mótfallnir. Sjálfri ber henni sem
félagsforystu að hafa ákveðna skoðun í málinu, hlutleysi stjórnar undir
svona kringumstæðum er yfirleitt ekki afsakanlegt.
Félagsstjórninni ber því að ræða málið vel innan eigin vébanda og
hafa jafnframt svo gott samband við félagsmenn á vinnustöðvum sem
auðið er þannig að hún viti sem gerst um skoðanir með og mót og
kraftahlutföll milli þessara skoðana. Hún athugar samtímis öll viðhorf
og aðstæður til að ná fram betri samningum og hefur þar með skapað
sér skilyrði til að mynda sér raunhæfa skoðun á málinu og möguleika
á að gera í því ákveðna tillögu.
Fundur sá, er taka skal ákvörðun í svona veigamiklu máli þarf að
vera sérstaklega vel auglýstur og vel undirbúinn, enda sé af hálfu for-
ystunnar, málið lagt svo ljóst fyrir fundinn að ákvörðun hans' verði
sem allra eindregnust.
Nú hefur fundur samþykkt að sagt skuli upp gildandi kjarasamningi,
— og er þá venjulega ýmist stjórn félagsins, sérstakri nefnd eða stjórn
og sérstakri nefnd sameiginlega, falið að gera tillögur um breytingar á
samningum þ. e. semja kröfur og hafa þær tilbúnar fyrir tiltekinn tíma.
Undir öllum kringumstæðum verður hver félagsforysta að gefa sér
nægan tíma til undirbúnings kaupgjaldsmálanna og undir engum kring-
umstæðum láta þau komast í eindaga. Enda er venja þegar
uppsögn samninga er til athugunar, að tilkynna það viðkom-
andi sambandsstjórn með nægum fyrirvara áður en félagið tekur bind-
andi ákvörðun. Þetta er ekki aðeins nauðsynlegt og skylt vegna þess að
stéttarsambandi ber venjulega ekki skylda til að styðja í deilu það félag,
sem leggur út í hana án samráðs við það, heldur líka vegna þess að
sambandsstjórn þarf bæði að vera vel kunnug málavöxtum og hafa sinn
tíma til nauðsynlegs undirbúnings, ef félagið þyrfti á aðstoð sam-
bandsins að halda.
Þá ber félaginu einnig að hafa tilkynnt sáttasemjara uppsögn samn-
40
VINNAN og verkalýðurinn