Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 44
Komum í veg fyrir stofnun
fnitlends hers
Um síðastliðin áramót varkti það
þjóðaathygli að tveir ráðherrar í nú-
verandi ríkisstjórn, þeir Bjarni Bene-
diktsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
og Hermann Jónasson formaður
Framsóknarflokksins, vöktu máls á
stofnun innlends hers. — Annar lét
í veðri vaka sem megin röksemd, að
vér íslendingar yrðum, sóma okkar
vegna, að eiga innlendan her til að
reka Rússa af höndum vorum!! Hinn
gekk hreinna til dyra og upplýsti að
slíkur her ætti að vernda verkfalls-
brjóta og herja gegn verkalýðssamtök-
unum.
Þessi óhrjálegi áramótaboðskapur
fulltrúa begja núverandi stjómar-
fiokkanna vakti að vonum djúpa
bneykslan í landinu, því ekkert er
heilbrigðum íslendingum fráleitara en
mannvíg svo ekki sé talað um löghelg-
an þeirra í þágu arðræningja gegn
landslýðnum. —
Þegar vígapostularnir tveir sáu
hversu þessi óvenjulega hreinskilni
þeirra fyrir kosningar verkaði á frið-
samt fólkið brá þeim alvarlega í brún.
Þeir tóku því það fangaráð að reyna
að klóra yfir og gefa skýringu á skýr-
ingu ofan, til að koma því inn hjá
kjósendum að hér hafi verið um að
ræða meinlausa hugdettu, sem ekki
bæri að taka alvarlega.
En hér er sannarlega um alvarlega
h)uti að ræða, hversu mjög sem þeir
Bjarni og Hermann reyna að klóra yf-
ir. Nu ber alþýðu allri að vera vel á
verði og láta ekki kosningasmjaður
óvina sinna villa sér sýn. Alþýðan sé
nú minnug þess, að fulltrúar þessara
flokka hafa fyrr leikið skrípaleik fyrir
kosningar. Hún má ekki gleyma því,
að fyrir kosningarnar 1946 þóttust
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Fram-
sóknarflokksins og og Alþýðuflokksins
aldrei mundu Ijá máls á afsali lands-
réttinda við erlendt ríki. En eftir
kosningar var það þeirra fyrsta verk
að ljá erlendu stórveldi land undir
hernaðarflugvöll. — 1949 lofuðu þeir
öllu fögru fyrir kosningar, en að kosn-
ingum loknum voru efndirnar: nýtt
hernám o. s. frv.
Það er hvort tveggja að forysta Al-
þýðuflokksins hefur dansað liðugt
42
VINNAN og verkalýðurinn