Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 45
rneð hinum tveim landssöluflokkun-
um allt frá Flugvallarsamningnum til
hernámssamningsins, enda yeit hún
ekki í hvora löppina hún á nú að
stíga í þessu nýja hneykslismáli. —
Um langan tíma hefur t. d. Alþýðu-
biaðið birt á víxl greinar ýmist með
eða móti hervæðingarhugmynd þeirra
Bjarna og Hermanns. Enn hafa for-
ystumenn flokksins ekki þorað að af-
g'reiða málið á flokksmundi svo vitað
sé. — Og úr því flokkurinn treystir
sér ekki til að hrækja hraustlegar í
þessu máli en þetta, nú fyrir kosning-
ar, getur öll alþýða og alþýðusinnar
m.eð kosningarétti ekki reiknað með
fulltrúum Alþýðufl. á þingi nema sem
ákveðnum andstæðingum að kosning-
um loknum.
011 alþýða, allir þeir kjósendur, sem
ekki vilja Ijá lið vígahugmynd lands-
sölumanna í þessu landi og vilja hafa
í heiðri íslenzka siðgæðiserfð gegn
vopnaburði og mannvígum, þeir verða
að taka höndum saman um að stöðva
þessa óhæfu, kæfa hana í fæðingunni.
Þeir mega ekki ráðstafa atkvæði sínu
i flokksnafni ef það fer í bág við
rétta afstöðu til þessa máls. — Þeir
verða að stilla sér við hlið verkalýðs-
samtakanna í þessu máli og kjósa þann
eina flokk, sem staðið hefur einhuga.
gegn hervæðingarhugmyndinni og all-
ir vita að treysta má til að kvika ekki
frá þeirri afstöðu sinni: Sósíalista-
flokkinn.
RÁÐSTEFNA um þjóðareiningu gegn her á íslandi verður haldin
í Reykjavík dagana 5.—7. maí.
Verkafólk. Veitið verkefni þessarar ráðstefnu athygli og allan
þann stuðning sem verða má.
Allir eitt gegn her í landi voru. — Burt með herinn.
VINNAN og verkalýðurinn
43