Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Side 49
Hún átti fyrsta frumkvæði að stofn-
un sumarheimilis í sveit fyrir verka-
mannabörn og var fyrsti formaður
,,Vorboðans“, sem ennþá er eina
barnaheimilið, sem starfar á þeim
grundvelli.
Hún var önnur aðalkonan sem
beitti sér fyrir stofnun Mæðrafélags-
ins, til þess að fá mæður til að beita
samtakamætti sínum til að bæta kjör
sín og bama sinna.
I tólf ár átti hún sæti í bæjarstjórn
Reykjavíkur sem fulltrúi sósíalista og
beitti öllum áhrifum sínum til þess
að halda á rétti verkafólksins.
Saga Katrínar er saga hinnar sönnu
„hetju hins vinnandi fólks“, hana er
ekki hægt að rekja í fáum orðum.
í hug okkar er myndin af fíngerðri
slitlegri barnakonu, sem bar með
sér hugrekki og stolt sinnar stéttar.
Fordæmi hennar er arfurinn sem hún
skilar afkomendum og allri íslenzkri
alþýðu til brautargengis í baráttunni.
P.K.J.
/■--------------------------------------------------------------N
Dögun
(Með hliðsjón af gamalli vísu).
Vita skaltu bróðir, að lýðurinn er laut
sem Utilsmetið jarðarduft og aska,
mun r'isa á ný til sigurs þótt brött og grýtt sé braut.
Það bjarmar fyrir deginum t fjarska.
Og lát þú huggast bróðir, þvt sigur vor er vts,
og vertu ei lengur svona fjandi aumur.
Hún fylgir oss til baráttu hin bjarta heilladis
og býr oss vœngi lýðsins frelsisdraumur.
JÓHANNES STRAUMLAND
V_______________________________________________________________y
VINNAN og verkalýðurinn
47