Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Side 50
UM VIÐA VEROLD
Frá því í desember 1947 að skömmt-
un var afnumin í Sovétríkjunum og
gjaldmynt var hækkuð, hafa farið
fram 6 stórfelldar verðlækkanir þar.
Nýjasta verðlækkunin varð 1. apríl
s.l. Brauð, mélvörur o. fl. matvörur
lækkuðu um 10%, fiskur og kjöt um
15%, niðursoðinn fiskur 10%, ostur,
egg, borðöl, rjómaís 10% o. s. frv.
Kartöflur, kál, grænmeti og ýmis-
konar ávextir svo sem epli, perur, vín-
þrúgur, mandarínur, sítrónur, lækk-
aði í verði um 50%. Sykur og sælgæti
um 10%, te 20%, kakaó og ýms vín
um 15%.
Lækkunin nær einnig til margra iðn-
aðarvara. Baðmullar- og silkiefni hafa
lækkað í verði um 15%, sokkar og
prjónaföt 20%, skófatnaður 8—20%,
sápa um 15—20%, tóbak 5—10%,
Heimilisvélar svo sem ísskápar og
þvottavélar háfa lækkað um 20%, ryk-
sugur um 25% o. s. frv.
Aðeins sú verðlækkun sem orðið
hefur á vegum ríkisverzlana og kaup-
félaga nemur á einu ári 46 milljörð-
um rúblna hagnaði til neytenda. —
Og ef talin er sú verðlækkun sem
þessu fylgir á markaði samyrkjúbúa
nemur þessi upphæð ca. 53 millj.
rúblna.
Þróun efnahagsmálanna meðal al-
mennings hin síðustu árin geta menn
gert sér hugmynd um af því m. a.
að á árinu 1950 seldu ríkisverzlanir
og kaupfélög 30% meira af vörum
en á árinu áður, á árinu 1951 15%
meira en 1950 og 1952 seldist 10%
meira en á árinu 1951.
Haustið 1952 höfðu yfirleitt nauð-
synjavörur almennings lækkað í verði
um helming frá því á síðasta ársfjórð-
ungi 1947.
í sömu átt fer þróunin í öllum þeim
löndum ,sem lúta yfirráðum alþýð-
unnar.
Frá auðvaldslöndunum
Á annan veg gengur efnahagsþró-
unin meðal alþýðu í auðvaldslöndun-
um. Þar einkennist ástandið af her-
væðingarbrjálæði undir forystu
Bandaríkjaauðvaldsins. — Þar fara
lífsnauðsynjar stöðugt hækkandi í
verði, verðgildi peninga lækkandi,
hækkun beinna og óbeinna skatta,
vaxandi atvinnuleysi.
Samkvæmt upplýsingum efnahags-
nefndar Sameinuðu þjóðanna fyrii
Evrópu, sem byggðar eru á opinberum
skýrslum ríkisstjórna auðvaldslanda,
má sjá athyglisverða hluti. — Jafn-
vel slíkar upplýsingar leiða í ljós að
á sama tíma sem iðnaðargetu Vestur-
evrópuþjóðanna er beint að hernað-
arundirbúningi, fer framfærslukostn-
aður almennings stöðugt hækkandi.
— Borið saman við septembermánuð
1949 hækkaði framfærslukostnaður í
Frakklandi um 45%, í Noregi um 35%,
Svíþjóð 28%, Grikklandi 27%, Eng-
landi 22%, Hollandi 21% o. s .frv.
48
VINNAN og verkalýðurinn