Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Page 53
þús. í Kína, Sovétríkjunum og Japan, hvoru um sig. Það er víst að
talan hefur aukizt í Japan, eftir stríð. T. d. auglýsir nú 5000 manna
hópur eftir bréfaviðskiptum í Osaka einni saman. ísland er talið með
300. En lægst er talan í Gvatemala: 5 menn.
I blaði sambands esp-ista í Póllandi 1. tbl. 1953 eru birtar þrjár
greinar frá íslandi (úr Voco de Islando): „Barátta íslenzku þjóðarinn-
ar“ eftir Ó.S.M. ,,Reykjavík“, I.Ó. og nákvæm lýsing á hitaveitu
Reykjavíkur. Þá er þar einnig birt frumort kvæði Ingimars Óskars-
sonar grasafræðings: „Sonu sonu Esperanto".
Pólska esp-hreyfingin er nú í vexti. T. d. hefur félagið í Wroclav?
fengið til umráða 3 stofur fyrir starfsemi sína og hafið útgáfu blaðs.
Nýútkomin er orðabók á vegum sambandsins. Sá heitir I. Dratwer
(gerlafræðingur) er forsæti skipar í esp-anto sambandi Póllands.
Hann getur þess í bréfi að hann sé fluttur í nýtízku íbúð og Varsjá
sé að verða fegurri en nokkru sinni. Sendir hann öllum íslenzkum
esp-istum og alþýðu kveðju í nafni sambandshins: Vivu ta paco!
>1
Nýir verkamannabústaðir í Moskvu.
VINNAN og verkalýðurinn
51