Gerpir - 01.07.1947, Síða 19
r
GALGAAS
KAUPANGUR
Eins og öllum Austfirðingum mun
kunnugt er að rísa upp þorp stutt ofan
við Egilsstaði á Völlum. Vitrir menn úr
höfuðstaðnum hafa valið staðinn undir
þorpið. Mörgum sýnist þeir hafa reynst
misvitrir í þessu, og þykir staðinn vanta
flest skilyrði frá náttúrunar henöi, sem
f hreppnum fóru fram hreppsnefnd-
arkosningar 6. júlí s. 1. Kosningu hlutu:
Sveinn Jónsson, bóndi, Egilsstöðum,
Björn Sveinsson bóndi, Evindará, Stefán
Pétursson frá Bót, Pétur Jónsson, bóndi,
Egilsstöðum og Ari Jónsson, héraðs-
læknir.
T,Snœfell“
Ársrit Ungmenna- og íþróttasambands
Austurlands, Snæfell, er nýlega komið
út. Það er hin myndarlegasta bók, 7 ark-
ir að stærð auk auglýsinga, prýdd mörg-
um góðum myndum. I ritinu eru greinar
um íþróttamál, frásagnir af félagsstarfi
innan U. f. A. o. fl.
Austfirzkir íþróttamenn hafa getið
sér hið bezta orð á íþróttamótum, bæði
hér heima og annars staðar á landinu,
og ættu Austfirðingar að minnast þess
og styðja eftir föngum starfsemi sam-
bandsins. Má ekki minna vera en hið
myndarlega ársrit U. í. A. verði keypt
á hverju einasta austfirzku heimili.
æskileg eru fyrir hið væntanlega þorp.
Það er nú samt ekki ætlun mín að
ræða þetta efni frekar. Ekki þýðir að
sakast um orðinn hlut eða deila við dóm-
arann. Ég vil heldur víkja að nafni stað-
arins.
Ásinn sem þorpið er að rísa á heitir
Gálgaás, og liggur hann út fyrir ofan
hina breiðu mýri, sem tekur við ofan
við Egilsstaðatún. Stutt utan við ystu
húsin er hár klettur, þar var aftöku-
staður þeilra ógæfusömu manna, sem
dæmdir voru til hengingjar fyrr á öld-
um í Múlaþingi. Enn sjást mannabein
utan undir klettinum og leifar af heng-
ingartrénu. Mér er sagt að vitringarnir
að sunnan hafi valið hinni væntanlegu
kirkju þorpsins stað því sem næst út á
klettinum.
Nafnið á ásnum og klettinum virðist
ætla að gróa fast við þorpið. Nú er talað
um að fara inn á Gálgaás, ef menn eiga
erindi í þorpið, eða út á Gálgaás, austur
á Gálgaás. Hann býr á Gálgaás, svona
má lengi telja í ýmsum samböndum. Mér
þykir þetta nafn svo Ijótt og viðbjóðs-
legt, að ég get hreint ekki vitað, að það
verði framvegis haft á þorpinu. Þarna
verður vonum bráðar miðstöð Héraðs-
ins, eigi að eins um verzlun og samgöng-
ur, heldur og um ýmis menningarmál.
Þarna situr sýslumaður Norður-Múla-
sýslu, þegar búið verður að leggja Velli
og Eiðaþinghá ásamt Skriðdal til hennar
og laga þar með hina aulalegu skiptingu
milli Norður- og Suður-Múlasýslu. Þá
verða sýslufundir haldnir þarna, og þá
17