Gerpir - 01.07.1947, Page 21

Gerpir - 01.07.1947, Page 21
Vegid tvisvar í sama knérunn Um langt skeið hafa færeyskir sjó- menn notið sama réttar til fiskveiða hér við land og landsmenn sjálfir. Þessi rétt- indi Færeyinga á hinum íslenzku fiski- miðum hafa orðið til þess, að talsverð samskipti hafa komizt á á milli Færey- inga og Islendinga á sviði útgerðarmála, báðum til hagsbóta. Á seinni árum hafa nokkur færeysk skip stundað síldveiðar hér við land, að- allega á Austfjörðum, og lagt afla sinn á land til vinnslu í síldarverksmiðjunni á Seyðisfirði. Útgerð þessi hefir verið x ísienzkum höndum að öði’u leyti en því, að skipin voru eign færeyskra útgerðar- manna, sem leigðu þau með færeyskum skipshöfnum íslenzkum útgerðarmönn- um, sem svo lögðu þeim til nætur og báta. Þó hér hafi verið um aðeins fá skip að ræða, þá hefir þessi starfsemi þó haft mikið gott í för með sér fyrir austflrzkt atvinnulíf bæði fyrir þá verkamenn, sem fengið hafa atvinnu við að hagnýta aflann í landi, og svo vegna þess útflutn- ingsverðmætis sem hún hefur skapað, að falli betur að kenna læknabústaðinn við hann, en fjallið Ararat, sem ég veit til að merkur maður hefir ráðlagt honum — þá hann um það. Niður með Gálgaásnafnið. Upp með Kaupang. Ritað á Skírdag 1947. Gísli Hélgason. því ógleymdu, að ein af stærstu land- búnaðarsveitum hér á landi, Fljótsdals- hérað, hefir notið hinnar hagkvæmustu aðstöðu til fóðurmjölsöflunar frá síldar- verksmiðjunni á Seyðisfirði, sem unnið hefir úr síldinni. En auk þess hefir út- gerð þessara skipa einnig haft mikilvæga þýðingu fyrir framtíð síldveiða við Norð-Austurland því sökum þess, að skip þessi voru eingöngu bundin við löndun á Seyðisfirði, þá hefur fengizt dýrmæt reynsla fyrir því, hvernig þeim skipum, sem svo er ástatt um, reiðir af um aflamagn og afkomu. En sú reynsla hefir yfirleitt verið á þá leið, að þegar tekið er tillit til þess, að skip þessi eru ekki ganggóð og löndunarskilyrði við verksmiðjuna á Seyðisfirði ekki að öllu jafngóð og t. d. hjá ríkisverksmiðjunum, þá hefir afkoma þeirra samt verið mjog sæmileg miðað við aflamagn íslenzkra skipa, sem landa síldinni á Norðurlandi. Vegna þess að skip þessi voru eingöngu bundin við löndun á Seyðisfirði, hafa þau því nær alveg haldið sig á austur- hluta veiðisvæðisins, og að sjálfsögðu reynt að veiða síldina svo nærri lönd- unarstað sem unnt var án þess, að tefla um of á tvær hættur um veiði. Fyrir þessa sök hefir og fengizt nokkur bend- ing um það, að skipum getur vegnað sæmilega um aflabrögð, þó þau eigi ekki innhlaup til löndunar hjá mörgum verk- smiðjum hingað og þangað um veiði- svæðið og elti ekki hverja síldarfrétt frá Horni suður fyrir Langanes, en margir telja, að það hafi ofmörg af skip- 19

x

Gerpir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.