Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 23

Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 23
ist austan Melrakkaness. Þegar þetta er ritað, er enn eigi komið í ljós hverjar efndir verða á þessu, en geta mætti þess til, að ef síldin sjálf tekur sig ekki til og efnir þetta fyrirheit með því, að halda sig fyrir sunnan Langanes, kunni efnd- irnar að verða litlar. Af hálfu ríkisstjórnarinnar í Reykja- vík er því borið við, að undanþágu hafi ekki verið hægt að veita, nema með bráðabirgðalögum, og eins hinu, að það kunni að ýta undir kröfur nokkurra ann- ara þjóða um fiskveiðasérréttindi hér, ef haldið yrði áfram að veita Færeyingum slík fríðindi. Þetta eru hvorttveggja fremur lítilvægar ástæður, og það er ekki mjög trúlegt að það torveldi samn- inga við önnur ríki, eða ýti undir kröfur útlendinga um réttindi á Islandsmiðum, þó Færeyingum, sem hafa haft sérrétt- indi áratugum saman hér á landi, væri leyft að leggja upp síld til bræðslu úr fáeinum skipum, með sama hætti og við- gengizt hefir undanfarið, eitt eða tvö sumur í viðbót. Enda eru ástæður þess- ar, sem á orði eru hafðar, einungis yfir- skyn. Hin raunverulega ástæða fyrir neituninni er hin ráðandi stefna í fiski- veiðamálum hér á landi, sem mörkuð var með fiskiveiðalögunum frá 1922, en út- gerðarvöldin í höfuðstaðnum krefjast þess nú, að hún komi til fullra fram kvæmda með því, að réttindi færeyskra fiskimanna hér við land verði afnumin þegar í stað. Fiskiveiðalögin frá 1922 voru sett til þess að torvelda fiskiveiðar útlendinga hér við land, en það er meira en vafasamt að því markmiði hafi verið náð með þeirri lagasetningu. Ágætt dæmi um verkanir þessara laga er ein- mitt það hvernig Færeyingar brugðu við, er þeim var nú í vor neitað um leyfi til þess, að leggja upp síld til bræðslu á Seyðisfirði. Skipin sem um var að ræða fóru eftir sem áður á síldveiðar hér við land og söltuðu aflann utan landhelgi, og veiddu vel. Þessi síld keppir nú við íslenzka saltsíld á erlendum markaði, utan hins íslenzka hagkerfis. Ef skip- um þessum hefði verið leyft að veiða fyrir bræðsluna á Seyðisfirði eins og um var beðið, þá hefðu afurðirnar kom- ið á markað sem íslenzk framleiðsla á vegum hins íslenzka hagkerfis, og stuðl- að að því að auka gjaldeyrisforða Is- lendinga erlendis. Hinir misvitru vald- hafar í Reykjavík hafa með þessum stjórnarráðstöfunum á grundvelli fisk- veiðalaganna svo að segja þrýst Fær- eyingum út á nýja braut, knúið þá til þess að taka upp nýjan atvinnuveg, sem þeir hafa lítið stundað áður og með því skapað nýjan keppinaut á sviði síldar- útvegsins, sem ef til vill getur orðið flest- um öðrum keppinautum skæðari þegar fram líða stundir. Færeyjar liggja allra annara landa bezt við hinum islenzku fiskimiðum, og þar eru hin ágætustu skilyrði frá náttúrunnar hendi til þess að gera út saltsíldarleiðangra til Is- lands. Og vegna nálægðar eyjanna við hin íslenzku síldarmið, geta skipin það- an farið fleiri veiðiferðir um síldartím- ann, en skip frá öðrum löndum geta farið. Það er því enganvegin ólíklegt, að mikil saltsíldarútgerð rísi á legg í Fær- eyjum þegar fram líða stundir, í harðri samkeppni við íslenzka síldarsaltendur. Þá samkeppni geta íslenzkir síldarút- vegsmenn þakkað óviturlegri lagasetn- ingu og klaufaskap og skammsýni ís- lénzkra ráðamanna. Fiskveiðalögin sem sett voru 1922 urðu austfirzku atvinnulífi mikill hnekk- ir, því sú atvinna hafði lengi verið stund- uð í fjörðunum, að kaupa fisk af erlend- 21

x

Gerpir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.