Gerpir - 01.07.1947, Síða 26

Gerpir - 01.07.1947, Síða 26
JÓHANNES ARNGRlMSSON: ÚTVARP REYKJAVÍK“ SMÁSAGA Herdís á Heiði kom arkandi með síð- degiskaffið niður í túnfótinn. Jón bóndi hennar stóð þar í slægjunni og nagaði af seinustu þúfnakollunum í túninu. „Hérna kemur kaffisopinn, Jón minn,“ mælti hún um leið og hún settist niður á guðsgræna jörðina og hagræddi áhöld- unum, svo renndi hún kaffinu í bollann. Jón hætti slættinum, rétti úr sér og stakk niður orfinu. Hann hrækti út úr sér gamalli tóbakstuggu og settíst við hlið Herdísar. Hann strauk af sér svit- ann með skyrtuerminni, og tók síðan kaffibollann. ,,Þú ert þá reyndar að verða búinn með túnið, karlinn.“ — „Já, þetta þurrkleysi alltaf, og ennþá er útlitið það sama. Hvað skyldi þetta ganga lengi? Ég man ekki eftir því fyrri í okkar búskap, að túnið hafi allt verið slegið áður en nokk- ur tugga næðist í hlöðu. — Ja, þvílíkt og annað eins.“ Jón saup á kaffinu og renndi augun- um um himinhvolfið meðfram fjalla- hringnum. Hvergi sást heiðskír blettur, alltaf þetta sama þokuloft, dag eftir dag, já, það mátti nú segja. Ekki voru svo sem rigningarnar heldur. „Það er ekki gott að vita, hvað hann verður lengi við þessa áttina, en illa fer taðan, ef svona verður lengi. Hún er þegar farin að gulna, þar sem fyrst var slegið.“ „Já, ég er nú hrædd um það. En nú held ég að hann fari að breyta til bráð- um og þurrkurinn að koma. En hann getur stundum verið afsleppur hérna fram til dalanna, blessaður þurrkurinn. Skúrirnar eru stundum fljótar ofan frá öræfunum. — Þú þekkir það góði minn, hvernig demburnar geta dunið yfir okk- ur hérna, svo að segja frá heiðskírum himni. Já, því segi ég það, ef við bara hefðum útvarp, þá værum við ekki eins varbúin fyrir slíkum vágestum." Jón ók sér dálítið til og ræksti sig. „Varla mundi það nú breyta veðurfar- inu til muna, útvarpið, eða stöðva regn- skúrirnar frá fjöllunum." „Veit ég það, góði minn, ég átti ekki við það, eins og þú getur skilið, en ég sný ekki aftur með það, að veðurfregnir útvarpsins eru ómetanlegar í sveitunum, einkanlega um sumartímann. Eg held að ég vildi næstum láta beztu kúna úr fjósinu til þess að eignast útvarpstæki.“ „O, sei, sei, sei.“ Jón hvolfdi í sig því, sem eftir var í bollanum og rétti hann fram eftir meiru. „En sú fjarstæða, kona. Heldurðu að þeim gangi betur þarna í henni Reykjavík að fylgjast með því eða reikna það út, hvort skúrirnar ofan af fjöllunum, leiði lengra eða skemmra ofan í dalinn hérna. Heldur þú að þeim gangi það betur en okkur, sem búin erum að hokra hér í þrjátíu 24

x

Gerpir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.