Gerpir - 01.07.1947, Qupperneq 27

Gerpir - 01.07.1947, Qupperneq 27
ár'? Nei, kona góð, reyndu ekki að telja mér trú um það.“ „Þú segir nú þetta af því að þú tímir ekki að kaupa tækið, en þú veizt vel, að veðurfræðin er orðin vísindagrein og að veðurfregnirnar eru ekki gerðar út í loftið, heldur eru þær byggðar á vísinda- legum athugunum. Veðurfræðingarnir athuga hreyfingar loftsins á stórum svæðum, og þeir vita upp á hár, hvar rignir og hvar þurrt veður verður þann og þann daginn.“ „Mikil er speki þín, kona,“ mælti Jón, „ég held að þú sért að verða veðurfræð- ingur líka, það er ágætt. En heldur þú nú ekki, að þessum spekingum geti skjátlast stundum, heyrt hefi ég það.“ „Ekki þori ég að fullyrða neitt um það, en ég veit þó til þess, að fólk hérna í nágrenninu hefur bóstaflega treyst veðurfregnum útvarpsins og hagað hey- verkunum eftir því, og ég veit ekki bet- ur en það hafi gefizt vel. — Manstu kannske ekki eftir því, þegar við fengum ofan í töðuna í fyrra sumar, þessa litlu dembu. Allt varð gegn blautt, og svo hraktist taðan fyrir vikið miklu leng- ur. Þá var hann Steini á Hjalla nýbúinn að fá tækið sitt. Hann ætlaði að dreifa töðunni þann morguninn, eins og við, en þá dettur honum í hug, að hlusta á veðurfregnirnar fyrst. Þá var spáð rigningu, og hann hætti auðvitað við að breiða. Og fyrir vikið var hann búinn að hirða alla sína töðu hálfum mánuði fyrr en við. Þetta er alveg dagsatt og það veiztu. Jón hafði nú lokið kaffidrykkjunni og stóð á fætur. — „Ég fer í kaupstað- inn á morgun með ullarlagðinn, ef ekki verður þurrkur," sagði hann. „Þú at- hugar hvað þú þarft að fá þaðan, ég fer snemma.“ Herdís fór að taka saman kaffiáhöld^ in, hægt og rólega. „Það er víst eitthvað smávegis, sem mig vantar, ég skal að- gæta það fyrir kvöldið . . . en heyrðu nú Jón minn, vertu nú einu sinni rausn- arlegur og færðu mér útvarpstæki úr kaupstaðnum annaðkvöld. Ég þykist vita, að þér finnist það óþarfi, en þú verður nú að játa, að ég hef verið spar- söm á óþarfann, síðan við komum sam- an.“ „Smávegis . . . útvarpstæki? . . Jón snerist á hæli og horfði spyrjandi á konu sína. — „Kallarðu þetta smá- vegis, kona. Heilt kýrverð að minnsta kosti, ja, ég læt það nú vera. En það er satt, þú hefur verið sparsöm á óþarfann, hingað til, en þetta er svo mikil vitleysa. Ég veit ekki hvað segja skal, þetta geng- ur fram af mér . . . jæja . . en ég skal hugsa um það. Þá verð ég víst að selja Skjöldu," bætti hann við í lægri róm. Herdísi virtist þetta mál ekki vonlaust með öllu. Hún brosti glaðlega framan í bónda sinn. — „Þakka þér fyrir, Jón minn, þú munt ekki iðrast eftir kaup- unum.“ Hún tók kaffiáhöldin og gekk heimleiðis, en Jón tók aftur til við þúfna- kollana. Næsta morgun var Jón snemma á fót- um. Hann sótti hesta sína, lagði á þá reiðinga, batt ullarpokana í skyndi og var kominn af stað aflíðandi miðjum morgni. Hann kom tímanlega í kaup- staðinn og lauk þar erindum sínum á skömmum tíma. Verzlunin hafði gengið að óskum og nú var hann aftur á heim- leið og degi tekið að halla. Hafði hann þrjá reiðingshesta í taumi, og á einum þeirra var böggull, sem vandlega var bundinn ofan í milli klyfjanna. Það var útvarpstækið, o-ja, ekki bar á öðru. 1 fylgd með Jóni var maður einn úr kaup- 25

x

Gerpir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.