Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 29

Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 29
henni. Kannske var þetta tóm vitleysa allt saman, þessi kaup, og þessi sala á aumingja Skjöldu. En nú var of seint að Snúa við. Teningunum var kastað. Hún klappaði Skjöldu hátt og lágt og strauk hana alla utan. Skjalda brá sér hvergi og hámaði í sig arfann. Stundu síðar var Skjaida farin, Jón byrjaður að dreifa elztu föngunum og Herdís að sinna búverkum. Nú var um að gera að láta hendur standa fram úr ermum. Herdís skurkaði i koppum og kirnum, þvoði og þerraði, hrærði og hamaðist. Hún kepptist við að ljúka inniverkunum, til þess að kom- ast sem fyrst í heyþurrkinn. Og ekki var að tala um það, að verkin færu. henni ekki skjótt og skörulega úr hendi. Hún var mesti forkur, hún Herdís, að hverju sem hún gekk, það var óhætt um það. Hún bjó til kaffi í skyndi og ætlaði að færa bónda aukasopa um leið og hún færi út. Jón var langt kominn að dreifa úr föngunum á bæjarhólnum. Þau voru elzt og farin að gulna í botninn. „Fáðu þér hérna sopa, Jónminn,“sagði Herdís, um leið og hún setti kaffikönn- una niður og rétti Jóni bolla og sykur- skál. — Jón drakk kaffið standandi, en Herdís fór að þeyta um föngunum. Og svo unnu þau bæði af kappi nokkra stund. „Hamingjan góða,“ hrópaði Herdís allt í einu. Hún henti frá sér hrífunni og hljóp heim að bænum. Jón leit snogglega upp. Hann gat sízt skilið í því, hverju þessi upphrópun mundi sæta. „Hvað er nú“? kallaði hann á eftir Herdísi. „Útvarpið maður. — Veðurfregnirnar auðvitað. . . Ég var rétt. búin að gleyma þeim,“ kallaði Herdís á hlaupunum og hvarf um leið inn í bæinn. Jón hristi höfuðið og hélt áfram að dreifa. — Jæja, líklega var það rétt að hlusta á vísdóm veðurfræðinganna, af því að tækin voru til þess. Ekki gat það spillt neinu að hlusta, — og þó, það var alltaf tímatöfin, en nú mátti engin stund fara til ónýtis, því ekki. . . „Jón, Jón, hættu að dreifa, mað- ur,. . . tafarlaust." „Hvað gengur á?, kona,“ Jón sneri sér snöggt við og horfði á Herdisi, sem kom á harða hlaupum heiman frá bæn- um. Jón horfði til himins, en þar var ekki regnlegt, hvergi skýhnoðri á lofti. „Það er lægð að nálgast landið . . . ausandi rigning um allan suðurhluta landsins . . . og skúraveðri spáð hér í dag. — Það er ekkert vit í því að dreifa meiru af töðunni í dag. Hafðu min ráð og hættu strax.“ „Hu, ætli maður dreifi ekki úr þess- um föngum, sem eftir eru hérna á hóln- um. Þau eru búin að standa nógu lengi, held ég. Svo dreifðu þau föngunum enn um stund og luku við það sem eftir var á bæjarhólnum. „Þetta eru sjálfsagt einir tuttugu hest- ar, sem búið er að dreifa. Það er allt of mikið til þess að verða gegn-rennandi aftur. — Nú hætti ég þessari vitleysu, hvað sem þú segir,“ og Herdís bjóst til að ganga heim. „Mér væri skapi næst að dreifa á öllu túninu. En ég er hræddur um, að ég komist skammt með það einn, ef þú ert ófáanleg til þess að hjálpa mér. — Gott og vel . . . Þú skalt ráða í þetta sinn. En þó held ég að það sé misráðið, að hætta að dreifa töðunni í þessu út- 27

x

Gerpir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.