Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 33

Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 33
 í GERPISRÖSTINNI Undir þessari fyrirsögn er ætlazt til að drepið verði í stuttum smágrein- um á hið hélzta, sem á dagskrá er á hverjum tíma innanlands og utan. Að- sendar smágreinar og stuttar hugleiðingar þcssa efnis verða birtar i þess- um þætti eftir því sem rúm leyfir. Norðlendingar leita samvinnu við Austfirðinga og Vestfirðinga. Á Fjórðungsþingi Norðlendinga, sem haldið var um miðjan síðastliðinn júiimánuð var samþykkt svohljóðandi ályktun: „Fjórðungsþing Norðlendinga, háð á Akureyri 12. og 13. júlí 1947, samþykkir að leita samvinnu að eyða einni til tveim vikum til þess að læra sundið, áður en þeir fara á nám- skeiðið. Það eiga ekki að vera margir nú orðið, sem ekki kunna að synda, þar sem það er orðið eitt af skilyrðum við fullnaðarpróf úr barnaskóla. Austfirðingar! látið ekki ásannast, að þið ekki viljið afla ykkur nauðsynlegr- ar þekkingar til vélgæzlustarfa, þegar ykkur gefst tækifæri til þess án þess að fara út úr fjórðungnum, og athugið, að mikil og góð þátttaka í námskeiðinu, gæti orðið til þess, að Fiskifélagið sæi sér fært að festa námskeiðin hér eystra og koma einhvers staðar upp góðri að- stöðu til vélkennslu, því þörfin er brýn og það ætti að vera metnaðarmál okkar, að eignast, eftir því sem kostur er, vel menntaða vélgæzlumenn á vélbátaflot- anum á Austurlandi. Fiskifélag íslands vill fyrir sitt leyti hjálpa til að svo geti orðið. Árni Vilhjálmsson erindreki. og samráðs um aukið vald og fjárráð héraða og fjórðunga við Fjórðungsþing Austfirðinga, svip- aðan félagsskap á Vestfjörðum og félagsskap um málefni sveitar- og bæjarfélaga. Samþykkir fjórðungsþingið að kjósa 3ja manna milliþinganefnd i rnálið og felur Fjórðungsráði, að leita hófanna um sams konar nefndarskipun hjá þeim aðilum öðrum, er fyrr getur. Nefnd- irnar vinni síðan saman og skili áliti fyrir næsta fjórðungsþing. Eftirtaldir menn hlutu kosningu í nefndina: Einar Árnason, bóndi, Eyrarlandi, Sigurður Sigurðsson, sýslumaður, Sauðárkróki og Karl Kristjánsson, oddviti, Húsavík." RíkisverksmiSja á Austurlandi. Á siðast liðnu Alþingi voru samþykkt lög um breytingu á lögum um síldarverksmiðjur ríkisins þess efnis, að ríkið skuli reisa 5 þúsund mála sildarverksmiðju á Norð-Austurlandi, sunnan Langaness. Allir Austfjarðaþingmenn stóðu saman í máli þessu og ætti svo jafnan að vera í hagsmuna- málum Austfirðinga. Fjórðungsþing Austfirðinga samþykkti ein- róma áskoranir til Alþingis og ríkisstjórnar um þetta mál í fyrra sumar, og verður ekki annað sagt en að Alþingi hafi orðið vel og drengilega við þessari áskorun. Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar, því það mun heyra undir hana, að framkvæma vilja Alþingis í þessu efni. 1 lögunum frá síðasta þingi er kveðið svo á, að rannsókn og undirbúningi skuli lokið á þessu ári og byrjað að reisa verk- smiðjuna á r;æsta ári. Ennþá hefir þó ekki orðið vart við neinar aðgerðir í þessa átt, hvað sem veldur. Oft hafa sjómenn og útgerðarmenn orðið fyr- 31

x

Gerpir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.