Bergmál - 01.11.1956, Page 18
Október — Nóvember
Bergmál-----------------------
jaínróleg og örugg í framkomu
og fyrr, er hún var í lörfunum.
„Segðu mér nú hvað .þú áttir
við, er (þú sagðir að þú værir á
einstaka sviði vitrari en ég.“
„Tja, það er ekki mikill vandi,
en það tekur sinn tíma. Ég veit
að þú ert einn mesti herkonung-
ur heimsins. Það er gott út af
fyrir sig, til að ná völdunum. En
til þess að halda völdunum, og
það er þó aðalatriðið, þarf annað
og meira en herkænsku, til
dæmis fyrst og fremst mann-
þekkingu, en á því sviði ert þú
sannarlega ekki eins slyngur og
á orustuvellinum."
„Ert þú mér vitrari á því
sviði?“
„Já, vissulega. í Aþenu kynnt-
ist ég mörgum aldurhnignum,
vitrum mönnum, sem voru vinir
læriföður þíns, Aristotelesar. Ég
lærði margt af þeim og enn
meira hefi ég lært í Tyrus, því
að þangað komu margir hinna
grísku vina minna, og þeir
þekktu föður þinn, Filippus, þig
sjálfan og marga af herforingj-
um þínum frá Makedóníu. Þér
er óhætt að treysta því, að ég
þekki þá út og inn flestalla. En
þú þekkir þá ekki.“
Konungur sprettur á fætur.
„Þú ætlar þó ekki að' reyna
að gera landsmenn mína tor-
tryggilega, þessa trölltryggu
menn, sem hafa fylgt mér í öll-
um herferðum mínum alla leið
heiman frá Makedóníu?“
„Slíkt er fjarri mér. Ég vil
aðeins auka þekkingu þína á
ýmsu, sem gæti orðið þér til
gagns. En ég er þyrst. Þú átt
sennilega ekkert gott vín?“
Konungur tekur viðbragð.
„Á ég ekkert gott vín? Ég,
drottnari heimsins."
„Ja ....“ sagði Thais þurr-
lega. „Þú getur náttúrlega reynt
að spyrja birgðavörð þinn.“
Konungur slær í bjölluna:
„Birgðavörðinn.“
Hann kemur.
„Hvaða vín eigum við?“
„Vín frá Pontos, Pergamon og
nokkur frá Persíu.“
Thais brosir og segir: „Heldri
maður drekkur ekki slíkt gutl.
Ég get útvegað þér Kýpurvín,
hið einasta, sem heldri maður
getur verið þekktur fyrir að
drekka.“
„Getur þú það?“
„Já, láttu sækja Kyros, yfir-
mann þrælarekstursins, en ég
hefi verið hægri hönd hans í tvö
ár. Hann hefir ennþá í fórum
sínum tvær litlar tunnur af
16